»  off record  »  Afleysingablogg II
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Afleysingablogg II
Laugardagur, 01. maí 2004

Elly.jpgÉg á fá orð yfir það hversu djúpt snortinn ég er yfir því að ein glæsilegasta kona landsins og þó víðar væri leitað skuli nenna að gera eina gestafærslu á BadaBing!
Myndin er birt með leyfi Teits Jónassonar sem öðrum fremur kann að fanga fegurð kvenna á mynd en hér er hún án frekari málalenginga, Ellý Ármanns:

Skrifaðu bara um hvað sem þér dettur í hug, sagði hann. Bara einhverjar pælingar eða whatever, innihaldslaust blogg. -- Allt í lagi. Þá skrifa ég bara eitthvað. Tekur enga stund. Segi honum kannski bara hvernig mér líður. -- Í dag horfði ég reyndar sérstaklega vel í kringum mig og tók eftir því að litirnir urðu líflegri og hljóðin unaðslegri. Svo er kannski eitthvað varið í að vita að þessa dagana reyni ég að kenna drengjunum mínum að draga línur, setja sér mörk og svoleiðis. Reyni eins vel og ég mögulega get að kenna þeim hversu langt má ganga í mannlegum samskiptum og hve mikilvægt er að ruglast ekki á frelsi og hömluleysi.
Gerði ég mér líka grein fyrir því að maður er í raun og veru fær um að upplifa dagdrauma sína þegar maður ákveður það innra með sér hvort sem um foreldrahlutverkið eða innstu þrár er að ræða. Ég held að börnin verði að finna að foreldrar þeirra séu stjórnendur og hafi tök á lífinu og láti ekki vaða yfir sig en reyni á sama tíma að gefa eins mikið og mögulegt er. Elski þau af öllu hjarta en aldrei af léttúð. Heyrði einhvern segja að barn sem nær stjórn á foreldrum sínum missir að mörgu leyti fótfestuna í lífinu -- mikið til í því. En burtséð frá reglum og uppeldi þá held ég að maður ætti að nota snertingu oftar. Ég nota t.d. meira orðin til að tjá hug minn og tilfinningar gagnvart börnunum mínum. Ætla að breyta því. Að ekki sé minnst á óttann við að hleypa öðrum inn sem einstæðingur og gefa tilfinningum sínum lausan tauminn. Nóg um það. -- Best að huga að dagskrá kvöldsins og staldra milli kynninga aðeins við og biðja um leiðsögn varðandi ástina og tilveruna og allt hitt.

Minni svo á 1. maí ávarpið mitt sem er komið til ára sinna en stenst alltaf tímans tönn enda þessi dagur orðinn jafn máttlaus og úr sér genginn og verkalýðsforystan sem hefur um allt annað að hugsa en skjólstæðinga sína.

Næstu gestir verða væntanlega karlmenn enda vil ég ekki að hausateljarar á Félagsvísindastofnun væni mig um að gera konum of hátt undir höfði. Minn góði vinur Jakob Bjarnar er blessunarlega hættur að stuða liðið á Press.is enda vil ég milku frekar að hann skemmti skrattanum í sjálfum sér og mér með því að stíga á líkþorn hér. Hönnuðurinn Halldór E. er einnig á mælendaskrá en samningar standa yfir við stjörnublaðamennina Reyni Traustason og Eirík Jónsson. Ef það er eitthvað réttlæti í þessum heimi mun EIR bráðum analísa blogg hérna. Gefi þessir tveir sig verður svo öruglega stutt í að ati-bloggari dauðans Herra Mikael Torfason láti undan og bloggi.


| 12:40 |
komment

Hver er Ellý Ármanns?

Nr. 1 | organistinn | 1.05.2004 | 20:03:43 | [+] |

Oh, mér hafði dottið í hug að hún væri umsjónarmaður Óskalaga Unglinga.

Það býr bara ein Ellý í hugarheimi Organistans, og hún er Vilhjálms, sbr. Vegir liggja til allra átta...

Nr. 2 | organistinn | 2.05.2004 | 10:12:58 | [+] |

sorry, það eru Lög Unga Fólksins; auðvitað ekki Óskalög..

Nr. 3 | organistinn | 2.05.2004 | 10:42:00 | [+] |

Lög unga fólsins...

Nr. 4 | Þór | 3.05.2004 | 3:29:39 | [+] |

Datt nú í hug Q4U. En það er svo margt í lífinu sem er allt önnur ella.

Hvaða fyrirbæri nútímans samsvarar Lögum Ungafólksins?

Nr. 5 | Tony Clifton | 3.05.2004 | 8:11:11 | [+] |

Ellý - ég öðlaðist ekki frið í sálinni fyrr en ég tókst á við mína fortíð. Þau sár sem við veitum öðrum gróa ekki af sjálfu sér. Veistu hvern ég á við?

Nr. 6 | Helga T. | 3.05.2004 | 20:06:25 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff