Þriðjudagur, 18. maí 2004
Það er ekki á hrokann hérna bætandi en samt er Reynir Traustason boðinn velkominn með afleysingablogg. Þegar hann skrifar bækur seljast þær og þegar hann skrifar fréttir fara menn í fangelsi. Myndin af manninum með hattinn er birt með góðfúslegu leyfi snilldarljósmyndarans Pjeturs Sigurðssonar sem tók meðal annars fréttaljósmynd síðasta árs. Enjoy!
Blár foringi í myrkri
Þessa dagana geysar stríð í samfélaginu og naprir vindar næða um fjölmiðlaheiminn. Foringi vor, sem við dásömum svo mjög vill setja lög á þá fjölmiðla sem hafa ekki fallist á að hirð foringjans ritskoði fréttir. Stundum finnst mér eins og helblá krumla valdsins læðist aftan að mér þar sem ég sit við tölvu mína og slæ inn texta. Stundum verður óttinn til þess að ég ákveð að skrifa fallegar fréttir um sauðburð eða góða grásleppuveiði í stað þess að fjalla um sjálfan foringjann og þær hliðar hans sem sumir kalla svartar. En stundum fer fyrir mér eins og sporðdrekanum sem stakk froskinn sem var að ferja hann yfir fljót og þeir sukku báðir. Þá líður mér ýmist eins og sporðdrekanum eða froskinum, allt eftir atvikum.
Auðvitað á það að liggja í þagnargildi að stór hluti þjóðar óttist foringja sinn. Það er vont fyrir lýðræðið og stjórnina að talað sé við fólk sem er varla sjálfrátt vegna hræðslunnar og bullar þá eitthvað um ofríki og banana. Nær væri að varpa ljósi á það hve farsæll foringi vor var á árum áður þegar hann var rekinn áfram af hugsjónum sem höfðu þann tilgang fremstan að gera samfélagið betra og búa okkur þegnunum betra skjól. Þá var foringinn góður og þegnarnir þakklátir þótt undantekningar mætti finna. Og það voru einmitt undantekningarnar sem trufluðu foringjann á hraðferðinni í átt að heilbrigðara samfélagi. Hann vissi eins og rétthugsandi fólk að það varð að grípa í taumana. Þess vegna greip hann til þess að vara gallagripina leiftursnöggt við. Foringinn er varkár og vissi sem var að hin illu öfl samfélagsins myndu geta notfært sér það ef skammir væru skriflegar. Þess vegna tók hann upp þann sið að kalla menn á teppi sitt og lesa yfir þeim með nauðsynlegum þunga. Eða þá að hann nýtti sér símann og hringdi og lét í ljós skömm sína á athæfi viðkomandi. Nú seinast var umboðsmaður alþingis að láta í ljós á neikvæðan hátt álit á ráðningu frænda foringjans í hæstarétt landsins. Auðvitað tók foringinn umbann í gegn. Hann á ekki að láta í ljós álit á einhverju sem hann hefur ekkert vit á án þess að bera það undir frændann og foringjann fyrst.
Á leið okkar til frelsisins hefur foringinn þurft að mæta ýmsum raunum af hendi þeirra sem vilja ekki skilja. Þjóðhagsstofnun var beitt gegn honum með því að spá einhverri vitleysu um efnahagsmál. Auðvitað lagði hann stofnunina niður og fékk skynsama menn til að spá. Forsetinn á Bessastöðum hefur þvælst fyrir foringjanum og farið á skíði í stað þess að sitja í afmælisveislum sem haldnar eru til heiðurs foringjum fyrri tíðar. Á sama hátt neitar forsetinn að mæta í brúðkaup í nágrannalöndunum og móðgar þannig heilu konungsættirnar.
Foringinn skilur að nauðsynlegt er að leggja niður fyrirtæki og stofnanir sem hamla framgangi frelsisins. Norðurljósin eru á meðal þess sem trufla hann. Birta þeirra sker í augu og varpar bláma á andlit hans þar sem hann horfir til himins og er í beinu sambandi við almættið. Auðvitað verður að slökkva á þessum ljósum sem eru í senn pirrandi og lita grandvarar ásjónur með bjarma sínum. Foringinn vill ekki verða blár í myrkrinu. Og hann vill heldur ekki vera bleikur. Hið makalausa fyrirtæki Baugur á Bónusbúðirnar sem eru með í merki sínu bleikan grís. Bjarmi auglýsingaskilta Bónuss varpar bleikum bjarma á ásjónu foringjans og gerir hann bjánalegan. Þá minna skiltin óþægilega á höfuðóvin foringjans. Þess vegna verður að slökkva á Baugi og öllum skiltunum.
Mér finnst óeðlilegt að sýna foringjann bleikan eða bláan. Fjölmiðlar eiga að ná samkomulagi við hann um að sýna hann eins og hann gerist bestur og fylkja liði með Sjónvarpinu og Morgunblaðinu. Það má ekkert trufla foringjann á leið hans með þjóðina til hins fullkomna frelsis. Foringjaráðuneytið þarf að fá beinan aðgang að öllum fréttaveitum landsins svo stjórna megi því sem birtist og fyrirbyggja slys sem varpa annarlegu ljósi á leiðtogann.
Og að lokum finnst mér fyrir neðan allar hellur að kalla hann gungu eða druslu. Minnstu munaði að ég táraðist þegar þingmaður leyfði sér þennann munnsöfnuð sem er sá verst síðan foringinn var sagður bera skítlegt eðli innra með sér. Foringinn er fyndinn, frábær og kjarkmikil persóna sem á allt gott skilið. Hann þarf bara að fá að njóta sín í réttu ljósi svo öll þjóðin fái mynd af leiðtoga sem markað hefur spor sín í íslenskt samfélag. Þar er ég ekki að tala um sparkförin á afturendum þeirra sem risið hafa gegn foringjanum heldur þráðbein spor frá svartasta afturhaldi til frelsis sem foringinn einn veit hvernig á að virka. Heill foringja vorum og ríkisstjórn.
| 16:28 |