Mánudagur, 17. maí 2004
Eitthvað eru komplexarnir að angra lúserinn Hrafnkel Daníelsson þessa dagana. Hann er mikið wannabe og þess vegna svekktur yfir því að sjálfur Róbert Marshall, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur viðrað hugmyndir um að vísa nafngreindum vitleysingum út af spjallinu á press.is.
Það mun þó varla bjarga þessum spjallvettvangi blaðamanna frá dauða þó tilfellum á borð við Ingimund Kjarval og Hrafnkel verði vísað á dyr þar sem meðal skráðra félaga í BÍ eru vitringar á borð við Sigga Hlö og Valla Sport. Say no more!
Það er hins vegar vel að Hrafnkell fari fram á það við vefstjóra press.is að öll hans skrif á vefinn verði afmáð. Það er að vísu makalaus vingulsháttur að geta ekki leyft einhverju sem maður hefur einu sinni birt á Netinu að standa þó maður fari í fýlu en hitt vegur þó þyngra að fá skrif eiga jafn mikið erindi í ruslið og vangaveltur téðs Hrafnkels.
Minnimáttarkenndinni sleppir þó fljótt hjá séníinu og mikilmennskubrjálæðið brýst fram þegar hann segist ætla að halda áfram að halda úti hinum arfaslaka (svo ekki sé minnst á forljóta) vef Alvaran mér og Reyni Traustasyni til skapraunar. Heldur þetta grey virkilega að mér og Reyni sé ekki sama hvar hann er að belgja sig á Netinu? Ég hef þyngri áhyggjur af hægðum Danadrottningar en því hvað Hrafnkell þessi er að bardúsa.
Önnur ranghugmynd hans og ekki síður galin er sú grilla að ég hafi haft einna mest á móti því að hann afhjúpi heimsku sína á press.is. Honum er velkomið að hanga þar mín vegna enda er mér síður en svo annt um spjallið á press.is sem er stétt blaðamanna fyrst og fremst til háðungar. Einn Hrafnkell til eða frá breytir engu fyrir mér en miðað við veru hans og úthald á press.is ætti hann að vera nokkuð meðvitaður um að ég tjái mig ekki þar, frekar en á öðrum spjallsvæðum, og get því ekki látið malið í honum angra mig.
Ég verð þó auðvitað að játa það á mig að ég hef endalaust gaman að því að hreyta ónotum í Málefnin.com og get tekið undir með þeim sem glaðir horfa á bak Kela af press.is að hann er best geymdur á því hæli enda gengur þar hvert ídjótið undir annað í að kóa hann og aðra í firringu sinni. Gaman að því.
Hrafnkell vænir síðan góðkunningja minn, Reyni Traustason, um hroka í geðshrærðri kveðjufærslu sinni. Þetta er auðvitað galið eins og svo margt annað sem Málverjar hafa sagt um Reyni. Skemmst að minnast þess þegar því var lýst yfir að hann kynni best við sig í beituskúr að tala við og skrifa um karla. Þetta er maður sem hefur verið í því að skrifa bækur um konur á liðnum árum.
Ég kýs því að eigna mér eitthvað af hrokablammeringum Hrafnkels þó það sé út í hött. Ég hrokafullur? Hvernig má halda því fram eftir að ég eyddi sex vikum síðasta sumar í meðferð sem miðaðist nánast öll að því að fjarlægja úr mér hrokann?
Fyrrverandi eiginkona mín sem þekkir best skuggahliðar mínar og veikleika þvertekur með öllu að ég sé hrokafullur þar sem ég hata alla jafnt (eins og Dirty Harry). Kyn, kynhneigð, húðlitur og trúarbrögð skipta mig engu. Það er helst að ég sé með fordóma gagnvart heimskingjum. But who doesn´t?
Þá fullyrðir Bergljót Davíðsdóttir, blaðamaður á DV, sem þráir það heitast að eignast mig fyrir tengdason að ég sé sko alls ekki hrokafullur, bara svolítið snobbaður. Það ku lýsa sér í vali mínu á gestabloggurum og þá er vel við hæfi að tilkynna að sjálfur Herra Hroki, Reynir Traustason, gestabloggar á morgun. Það verður bomba. B-O-B-A!
Skutlaði inn slatta af gömlu efni sem á við þessa dagana. Kill Bill Vol.1 DVD umfjöllunina, eitthvað comix, og blóðsuguhlemmana sem komust ekki óstyttir á síður Fréttablaðsins. Vek síðan sérstaka athygli á ummælum Sverrirs Stormsker um heimildarmyndina sem Sjónvarpið sýndi um hann. Stormskerið var í ham og komst hvorki óstyttur né ritskoðaður á prent.
| 19:56 |