»  off record  »  Lost in a roman wilderness of pain
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Lost in a roman wilderness of pain
Laugardagur, 29. maí 2004

29.05.20..

Einhvers stadar í Sa Coma,
Mallorca.

This is the end
my only friend
the end
of everything that stands
the end
of our elaborate plans
the end

Thá er komid ad leidarlokum. Eitt sinn verda allir menn ad deyja og nú er komid ad mér. 6 árum of seint ad vísu en thad hlaut ad koma ad tví.

Hrafn vinur minn er hetja og hefur stadid sig sem slík í Smáralindinni og theim sem vilja minnast mín er bent á sofnunarsíma Hróksins 904 2004.

Hvad thig vardar Willy thá nenni ég ekki ad finna íslenska stafasettid thannig af ef thér er ofraun ad lesa thetta leiddu thá hugann ad thví hversu erfitt er ad skrifa thetta og slepptu thví svo ad lesa áfram.


Hjálp!
Ég er týndur í baenum Sa Coma á Mallorca. That er ákvedin kúnst thar sem thetta er frekar lítid og einfalt pleis sem ber nafn sitt med rentu en dvol hér jafnast svo sannarlega á vid coma.
Hér er allt morandi í falsadri merkjavoru og í gaer keypti ég mér forláta forljótt falsad belti og nú tharf ég bara ad finna Tommy Hifliggiggler galla handa Silju.
Well, that er semsagt ekki heiglum hent ad týnast í Sa Coma thar sem thetta virdist byggt upp í hringi svipad og Breidholtid (ég hef ad vísu oft villst í Breidholti) en ég virdist vera ad ganga í ranga hringi.
Hvernig fór ég ad tví ad týnast? Tjah, thegar madur er sólbrunninn eins og nidursodid karfakvikindi og umleid bannfaerdur úr sólinni er lítid annad fyrir mann med mína skapgerdarbresti ad gera annad en ad rolta út í Hypermarket og kaupa hvíta skyrtu.
Ég er svo fáránlega útlítandi allur svona raudskellóttur med skjannahvítan rass ad that má segja ad mojoid mitt sé vidbrennt ef ekki bara brunnid af mér. Hagsmunasamtok mislukkadra íslenskra flagara geta thví tekid thví rólega thar sem ég mun ekki gera strandhogg á veidilendum thess í brád. Samtokin settu fé til hofuds mér og hófu grimma rógsherferd um leid og fréttist af skilnadi okkar Onnu. Thessi taugaveikludu vidbrogd voru sem sagt óthorf ekki síst thar sem ég hef nú ákvedid ad gerast einbúi á la Gísli á Uppsolum í Vesturbaenum (ef ég kemst heim).
En med hvítu skyrtunni get ég nefnilega hulid brunasárin og gengid hugsi um gotur Sa Coma og ímyndad mér ad ég sé Lord Byron á vappi um Ítalíu í hvítu, vídu skyrtunni sinni. Thetta er alls ekki svo galdi thar sem strákarnir hérna eru miklu saetari en stelpurnar. That sem dregur aftur á móti úr rómantíska fílíngnum er ad eiturlyf virdast ekki vera neitt sérstaklega adgengileg hérna. Annad gildir um bjórinn og brennivínid.
Ó vei! ykkur óvirku olkum sem hrekist úr einum stórmarkadnum í annan thar sem áfengisúrvalid er betra en í ÁTVR búdunum heima. Til ad baeta gráu ofan á svart er svo fólk ad lepja bjór á ollum gotuhornum svo langt sem augad eygir.
Alkarnir heima tala um ad that sé "vatnsvedur" thessa fáu gódvidrisdaga á Íslandi en thá eigum vid ad drekka vatn á medan adrir staddeyfa tilfinningar sínar med bjór eda raudvínsglasi.
Hér er tví stodugt vatnsvedur og í nótt dreymdi mig ad ég vaeri fallinn og hefdi dottidída med bros á vor. Draumurinn breyttist sídan í martrod thegar The Lizard King birtist í brennivínsthokunni oskrandi og ofbeldishneigdur. Ég vaknadi og haetti vid ad falla.
Eníveis. Ég er týndur í Sa Coma. Ég rata ekki til baka thar sem oll kennileiti hér eru eins. ERGO: That eru engin kennileiti í Sa Coma. Allar búdirnar eru eins og selja sama varninginn; vindsaengur og ljóta minjagripi. Kaffihúsin og barirnir eru líka oll eins og fólkid sem situr thar ad sumbli er líka allt eins. Sumir eru etv. adeins feitari og ljótari en adrir en that er ekkert sem jafn umhverfisblindur madur og ég hegg eftir eda veiti athygli.
Ég er samt ekki hraeddur og maeti orlogum mínum aedrulaus. Hélt samt einhvern veginn ad hot shot eins og ég aetti inni fyrir ogn hetjulegri dauddaga en ad veslast upp týndur á Mallorca.
Og thó Byron dó úr hita á Grikklandi.
Hvad er ég ad vaela?


| 18:30 |
komment

Hvað ertu líka að þvælast þetta Tóti minn; þú hefðir getað sagt þér það að þetta væri ekkert fyrir þig; það vissi ég að minnsta kosti; var ekki nóg að vera viku?
Hér er sumarið loks komið; hefur verið dásamlegt veður frá því vel fyrir helgi; 18-20 stiga hiti, og það er svo hlýtt að ég get farið í kvöldgöngu með hundana á bolnum.
Fer þetta ekki að styttast?
Begga

Nr. 1 | Begga | 30.05.2004 | 0:28:42 | [+] |

Eru ekki einhverjar ríkar kvótadætur af landsbyggðinni þarna í ferðinn með þér á Mallorca. Taktu þær uppí rúm og kenndu þeim sitthvað um sögu og hefðir Rómverja til forna.

Nr. 2 | organistinn | 30.05.2004 | 6:29:04 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff