Sunnudagur, 30. maí 2004
Lesi thetta einhver er ég sem sagt týndur en samt edrú og that eina sem ég skil eftir mig er thessi leidarvísir fyrir thá sem gaetu lent í somu hremmingum.
MATUR:
Varúd: That er ekki til Prince Polo á Mallorca. PP má hins vegar kaupa í Fríhofninni á leidinni út og thví rádlegt ad fylla eins og eina litla ferdatosku af thessari naudsynjavoru.
Skinkusamlokur og pizzur á veitingastodum eru OK og verdid er vidunandi. Séu menn blankir maeli ég med túnfiski í olíu beint upp úr nidursududósinni, eplum og McVitie´s hafrakexi. Thetta er orugg faeda.
That sem hér kallast "hamburgers" er undarlegur matur og ég skal hundur heita ef einu einasta nauti hefur verid slátrad til thess ad búa til "hamburgers" á Mallorca. Thetta er eitthvad undarlegt ljóst hakkabuff sem bragdast thó alls ekki illa. But hamburger it ain´t.
Kókid er, rétt eins og heima, best í litlum glerfloskum thó nokkud vanti upp á bragdgaedin hér enda Kók hvergi betra en á Íslandi. Thetta liggur líklega í vatninu en that er med skrýtnu bragdi hérna. Samt lifesaver og best ad kaupa that í 5 lítra kútum. Kaffid er í flestum tilfellum baerilegt (ekki jafn vont og uppi á Fréttabladi) en til thess ad fá svart kaffi í saemilega stórum bolla er best ad panta "Cafe Americano".
Merki McDonalds tryggir gaedin. "Gaedi" í sambandi vid McDonalds thýdir thó eingongu ad thad er universaly unpleasant ad éta McDonalds hamborgara. Their eru jafn litlausir, rýrir og pappakenndir hér og í London og Reykjavík. Maeli thví med McNuggets. Eina tilbreytingin sem er fólgin í thví ad versla McDonalds í Palma er ad thar krefst kerlingin sem afgreidir mann thess ad fá ad sjá skilríki "documentation" thegar greitt er med kreditkorti.
Á Íslandi thurfa krakkar ad sýna skilríki til ad kaupa áfengi en á Mallorca getur hver sem er keypt Bacardi Breezer en tharf ad framvísa vegabréfi til ad fá hamborgara. So pay cash at McDonalds.
STRONDIN:
Simply stay away!!
Raetnir menn gaetu sagt ykkur ad á strondinni sé mikid af flottum berum kroppum til ad skoda og ad stinn, sólbrún brjóst séu thar í sama magni og vatn í bakkafullum laek. Thessir somu plebbar sem tala hátt í flugstodvum, vodvastaeltir, sólbrúnir í svortum hlýrabolum med sólgleraugu og 3 daga skegg eins og Don Johnson sé enn funheitur maela eindregid med thví ad karlmenn noti sólgleraugu á strondinni til thess ad that sjáist ekki hvert their gjóa augunum.
Ég maeli frekar med thví ad menn loki bara augunum aetli their á annad bord á strondina. That getur nefnilega haft varanleg og nidurdrepandi áhrif á kynhvotina ad horfa yfir heilu breidurnar af grótesku, sloppu og skvapandi holdi. Flassbokkin ein og sér eru ávísun á risvandamál thegar leikar standa sem haest sídar á lífsleidinni.
Á jákvaedu nótunum má thó benda á ad their sem glíma vid of brátt sádlát aettu ad leita sér laekningar á strondinni í Sa Coma. Thegar vodaskotid er ad rída af tharf bara ad hugsa um beru brjóstin á feitu, bleiku kerlingunni á gula handklaedinu undir pálmatrénu lengst til haegri. That aetti ad kaupa manni auka kortér eda svo.
ANNAD:
That er freistandi ad haetta ekki ad reykja á stad thar sem sígarettupakkinn kostar rétt um 200 kr. Madur er hreinlega ad stórtapa peningum á thví. Hér thikir líka jafn sjálfsagt ad reykja og drekka bjór. Gangstéttir eru thaktar stubbum og oskubakkar eru alls stadar meira ad segja vid hverja tolvu hérna á netkaffihúsinu (sem er ekki kaffihús heldur hjóla- og bílaleiga).
Ég gaeti haldid svona endalaust áfram en tilgangurinn er enginn thar sem thessar leidbeiningar hafa amk ekki hjálpad mér.
Eitt er samt á hreinu. 2 vikur eru way too much og ég sakna litla, ljóta Íslandsins míns thar sem nádugur Keisarinn er andvaka allar naetur yfir oryggi thegna sinna. Mest sakna ég samt vinnunnar minnar sem einmitt heldur oft voku fyrir hans hátign....
bid ad heilsa ollum heima sem gangast vilja vid mér
adios eda bara so long suckers
| 17:12 |