»  off record  »  Coldplay og Southern Comfort
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Coldplay og Southern Comfort
Sunnudagur, 20. júní 2004

Þetta gæti verið titill á þunglyndri ljóðabók eða kafla í risastóru Reykjavík noir skáldsögunni minni en þessi samsetning er frá Ellefunni. Sat þar og drakk svart kaffi með Þór eitthvert kvöldið þegar maður kom á barinn með geisladisk, rétti bardömunni og bað hana um að spila lag númer 6.

Það var Trouble með Coldplay og svo pantaði hann Southern Comfort. Á öllum mínu langa og drungalega barsetuferli er þetta sennilega eitt mest trist móment sem ég hef upplifað. Þór veðjaði á að þetta væri brotin sál á ríbándinu. Veit það ekki en samsetningin Coldplay og Southern Confort er heillandi í ljóðrænum tómleika sínum.
Vísíteraði skuggalegustu skúmaskot næturlífsins á föstudaginn. It felt like home. Verð að komast til botns í því hvaða geðveilur valda því að mér líður alltaf best í félagsskap fólks sem hefur orðið undir í lífinu, glæpamanna, dópista, geðsjúklinga, fastakúnna á bensínstöðvum og nektardansmeyja sem lesa Fréttablaðið. Heimur smáborgarans er litlaus og leiðinlegur í samanburði við ævintýralega undirheima Reykjavíkur og Kópavogs.

Strange days have found us,
strange days have tracked us down........


| 15:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff