Fimmtudagur, 24. júní 2004
Fór í siglinguna með Fíflaskipinu í kvöld. Siglingin var farin í tilefni af útkomu bókarinnar Engill tímans Til minningar um Matthías Viðar Sæmundsson. Fullt af fínu fólki á greinar í þessari bók sem er öll fjarska vel úr garði gerð.
Matthías var auðvitað langflottastur og ég er ekki frá því að aðdáun mín á honum hafi haft sitt að segja um það að ég fór í bókmenntafræði og geng enn bara í svörtum fötum.
Um borð í Dárafleyinu voru einnig eintök af hinni nýútkomnu Skorrdælu sem er minningarrit um Svein Skorra Höskuldsson en hann er að öllum öðrum ólöstuðum allra skemmtilegasti kennari sem ég hef setið tíma hjá. Maður lærði margt hjá Skorra og minnst upp úr bókum. Great storyteller og mikill spekingur.
Nánast öll menningarelítan var um borð að drekka bjór í boði þess mikla höfðingja JPV. Ég held að það megi segja að frítt áfengi sé eina áfengið sem ég sakna en fátt þótti mér betra en að drekka ókeypis áfengi og held því hiklaust fram að það svífi betur á mann og því fylgi skemmtilegri víma. Þetta var sérstaklega næs þegar ég var verkamaður en glansinn minnkaði þegar ég gerðist blaðamaður í netbólunni og kokteilboð og veisluhöld hvers konar urðu algengari en vort daglegt brauð.
50 ára afmæli Essó verður mér til að mynda ætíð minnisstætt, sem er merkilegt þar sem ég hef sjaldan innbyrt jafn mikið magn á skömmum tíma og ætti því ekki að muna neitt.
Fátt gleður fátækan verkamann meira en bús í boði auðvaldsrisans sem tekur hann í óæðri endann alla daga þannig að þetta var once in a lifetime oportunity. Ég og Einar á Smurstöðinni hömstruðum svo mikið að okkur hefði ekki enst vikan til að klára og það endaði með því að gengilbeinurnar fóru að taka frá okkur ósnet glös. Okkur var auðvitað alveg sama vegna þess að við áttum meir en nóg.
Þetta kvöld endaði í partíi þar sem skjalataska full af dópi og skammbyssa komu við sögu. Ég horfði óttalaus í byssuhlaupið og fannst ég vera helvíti svalur en lærði það ekki fyrr en í meðferðinni mörgum árum seinna að óttaleysi fyllibyttunnar hefur ekkert með hugrekki að gera. Sæt minning samt.
Eftir partíið þar sem ég var ekki skotinn fór ég og opnaði bensínstöðina, fékk mér kleinur, trópi og grænan frostpinna í morgunmat. Ældi öllu umsvifalaust og kláraði svo vaktina eins og ekkert hefði í skorist.
Sukk er sport fyrir unga menn.
Talandi um bækur þá er Mausi að lesa Atomised eftir franska eðalklámkjaftinn Michel Houllebecq. Ég skrifaði þennan snilldarpistil um hana á Bókavefinn á Strikinu eftir pöntun frá Hrafni.
| 0:15 |