Þriðjudagur, 22. júní 2004
fyrir EIR
Búinn að hengja upp úr þvottavélinni og vökva blómin hennar systur minnar. Páfagaukurinn virðist hins vegar vera bæði í hungurverkfalli og vatnsbindindi þannig að ekkert þarf að bæta á hjá honum. Kannski veit hann ekki að ég er hérna til þjónustu reiðurbúinn. Kannski er hann bara þunglyndur eins og páfagaukurinn í ljóðinu hans Ísaks Harðarsonar?
Keypti afmælisgjöf handa Dodda í Nexus og fékk afslátt þannig að ég gat keypt mér grillað túnfisksbrauð á Café París. Mér finnst tunamelt gott en samt ekki jafn gott og Prins Póló. Ég er blankur en enginn vildi lána mér 500 kall í dag. Það eru allir á móti mér og lífið er ósanngjarnt.
Vísir að ferilssögu
Það er verið að blása lífi í Vísi.is. Byrjaði að vinna þar sumarið 1999 þegar Ásgeir Friðgeirsson ritstýrði vefnum og Eyjólfur Sveinsson átti hann. Þetta var lærdómsríkur tími og dýrmætasta lexían sem ég lærði var að vinna aldrei aftur á fjölmiðlum í eigu Eyjólfs. Ég átti því ekki von á því að ég myndi þurfa að sinna Vísi aftur þegar ég gekk út úr Þverholtinu í miklu skemmtilegri vinnu (aftur hjá Ásgeiri) á Strikinu. Þar var flippað stuð á meðam Hrafn ritstýrði Pressunni. Síðan hallaði undan fæti og ég fór aftur að vinna hjá FF gegn betri vitund þegar ég fór yfir á Fréttablaðið Vol.1. Þá kom Vísir aftur í minn hlut um stundar sakir. Engir fagnaðarfundir svosem. Vísir hefur ekki verið neitt neitt undanfarið en hefur verið poppaður upp og ég er eina ferðina enn farinn að sinna honum að hluta. Einu sinni bjó Björgólfur eldri í sama stigagangi og ég og Anna en nú á hann Ísland. Lífið er skrýtið og gengur í undarlega hringi. Vísir.is ætti að geta komist aftur á toppinn núna þannig að það er best að gangast við honum og setja hann á tenglalistann.
| 0:38 |