Þriðjudagur, 22. júní 2004
Þegar maður hefur ekkert að gera getur verið gaman að browsa í gegnum Málefnin.com það er að vísu jafn uppbyggilegt og að runka sér með ostarifjárni en með því að pósta diss hér á BadaBing! á þá sem þarna leggja helst orð í belg má gera lesturinn að æsispennandi rússíbanareið.
Færslan frá því í gær hleypti af stað þrusu masshysteríu hjá málefnaliðinu sem gerir ekki greinamun á ómerkilegu bloggi blaðamanns og prentmiðlinum sem hann vinnur hjá en þar sem lungi málverja deilir einni kollektífri heilasellu varð bloggið skyndilega orðið pistill í Fbl. Gaman að því auðvitað og segir allt sem segja þarf um athyglisgáfuna á þessum bæ.
Verst þykir mér samt að geta ekki borið snefil af virðingu fyrir þessum görpum og gerplum þar sem þá væri það mér mikill sómi að fá þann heiðursess að vera settur yfir bræðurna Smára og sme á lista einhvers Schumachers yfir Fréttablaðsfíflin.
Samt gaman að vera AÐAL en þar sem ég get ekki verið virkilega stoltur af þessari upphefð, af fyrrgreindum ástæðum, þá get ég heldur ekki móðgast fyrir hönd alls sprenglærða samstarfsfólksins míns sem er ekki nefnt á nafn og kallað einu nafni "skólakrakkar".
| 22:29 |