»  off record  »  Festen
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Festen
Mánudagur, 14. júní 2004

Afmælisveisla einfarans var látlaus, kaffi og appelsín á Vegamótum með syni mínum og Hrafni J. Það er að vísu engin ástæða til þess að kvarta þar sem betri félagsskapur er vandfundinn.

Hrafn er vinur í raun og færði mér bækur í afmælisgjöf, Alfræðibók skákarinnar (hann ætlar ekki að hætta fyrr en ég læri mannganginn) og Ég læt allt fjúka – sendibréf og dagbókarbrot frá skólaárum Ólafs Davíðssonar. Eðalstöff og ég fæ ekki betur séð en að hér séu í raun bloggbókmenntir á ferðinni þó hún sé prentuð 1955 og efnið rúmlega 100 ára gamalt. Hefðu þeir haft svona Internet þarna í gamla daga hefði Ólafur Davíðsson verið besti og frægasti bloggarinn.

Viliði dæmi? OK, here goes….

12. júní – sunnudagur

Trinitatis. Fór seint á fætur, ekki fyrr en klukkan 9, en ekki las ég samt neitt í rúminu, því ég var að hugsa um kvenmenn og annan óþverra. Um leið og ég klæddi mig ásetti ég mér að fara nú að láta skríða til skarar við lesturinn. Það dugir ekki annað. Prófið fer í hönd.

10. marz – fimmtudagur

Svo fór ég til Jónasar langa og drakk hjá honum kaffi og toddy. Vér töluðum mest um íslenskt kvenfólk, og að gaman væri að semja rit um það og þræða skapeinkunnir íslensks kvenfólks.

Ég er bara hræddur um, að ég verði svo mikill framsóknarmaður með tímanum, að þér mislíki

Aldrei þessu vant hafði hann ekki bragðað vín í fjóra daga -


| 11:03 |
komment

svei mér þá...

Nr. 1 | thors | 14.06.2004 | 15:49:14 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff