Föstudagur, 11. júní 2004
John Milius er lélegur leikstjóri sem er einna frægastur fyrir myndina Conan the Barbarian með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki og að vera góður vinur Stevens Spielberg, George Lucas og Francis Ford Coppola en þræðir þessara gaura liggja víða saman í bíóbransanum.
Milius er í viðtali í nýjasta Empire og lætur Michael Moore fá það óþvegið og hótar honum sjálfum Arnold. Kjafthátturinn er þannig að Milius ætti að fá vinnu á Útvarpi Sögu ef hann gefst endanlega upp á að búa til B-myndir.
Michael Moore´s a total, fraudulent asshole. I don´t mind saying that in print. If I ever become Arnold´s chief of secret police and he comes to California, he´ll be arrested, given a show trial and executed. This is a guy who sticks up for the little people, but he goes everywhere in a limousine and he´s very rich. If people believe that shit they deserve it.
| 20:29 |