Þriðjudagur, 22. júní 2004
Athyglisvert að dómsmálaráðherrann og bloggarinn Björn Bjarnason skuli taka upp á því að mæra bloggið þegar það er í dauðateygjunum og þeir sem áður gátu eitthvað á blogginu eru ýmist hættir eða orðnir lélegir og leiðinlegir. Stebbifr er að vísu uppáhaldsbloggari Björns og sá er eins og McDonalds borgari, alltaf eins.
Mér er auðvitað varla unnt að vera sammála Birni um nokkurn skapaðan hlut en get þó viðurkennt það að við deilum áhuga á amerískum spennumyndum og þykir lítið til Málefnanna koma. Þetta tvennt sýnir þó að hvorugum okkar er alls varnað.
Málpípur heimskunnar voru að barma sér yfir því að Fréttablaðið gerði lítið að því að vitna í skrif þeirra á vefnum. Ég þóttist geta lesið það milli línanna hjá bjánanum sem kallar sig Glowe að þetta áhugaleysi blaðsins á vaðlinum á malefnin.com megi rekja til alkóhólískrar gremju minnar í garð þeirra sem þar tjá sig. Dæmigerð paranojurangtúlkun sem er persónueinkenni duglegustu málverjanna. Það vill nefnilega svo einkennilega til að á meðan ég og Jakob sáum um Af netinu var vitnað reglulega í málverjaspjallið, stundum vegna þess að menn voru býsna gáfulegir en oftar vegna þess að vitleysan var svo geggjuð að við töldum ríka ástæðu til að prenta hana í 100.000 eintökum heilbrigðu fólki með húmor til ánægju og yndisauka.
Mér hefur alltaf þótt kostulegt að lesa viðbrögð málverjanna við skítkasti mínu en þeir vita það auðvitað manna best að þetta skrifa ég allt í æðiskasti (NOT!)yfir því að þeir séu einu alvöru frjálsu fjölmiðlamennirnir í heiminum á meðan ég er viljalaust handbendi auðhrings.
Það þarf auðvitað eitthvað svo miklu meira en þennan skríl til að raska ró minni. En þeim er frjálst að trúa því sem þeim líkar best enda er þetta lið svo gersamlega staurblint á stíl, mælskubrögð og almennan fíflagang að það er að kafna í heilagri vandlætingu og bókstafstrú sem fær Gunnar í Krossinum til að minna á Jörmund Ingaeins og sést best á móðursýkinni sem greip um sig eftir að Sigurjón Kjartansson dissaði konur af asísku bergi brotnar og íslenska eiginmenn þeirra í Tvíhöfða. Hverjum öðrum en málverjum dytti til hugar að taka Tvíhöfða hátíðlega?
| 0:09 |