Mánudagur, 26. júlí 2004
Þjakaður vinnualkinn hefur fundið sér viðfangsefni í sumarfríinu og það ekki af verri endanum; nú skal Bobby Fischer frelsaður! Þetta er ekkert djók sko þegar Hrafn, Tóti, Hrókurinn, BadaBing! og fleiri taka sig saman getur allt gerst og ég spái því að Bobby verði frjáls fyrir helgi.
Það er auðvitað með öllu óþolandi að brjálaðir snillingar skuli sæta ofsóknum. Heimurinn væri ljóta drullupleisið ef engir fyrirfyndust brjálæðingarnir og það á því að gera allt annað við þá en henda þeim í steininn. Frekar að klappa þeim á bakið og panta handa þeim pizzu.