»  off record  »  Grunaður um morð - frumsýnt í ágúst
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Grunaður um morð - frumsýnt í ágúst
Miðvikudagur, 14. júlí 2004

Forsíða DV í dag er það sem heitir á fagmálinu schnilld. Algerlega vintage EIR.
Efnið er svo sem ekkert gamanmál en fyrirsagnirnar eru brill og myndin stórfengleg. Súrrealísk. Á baksíðunni er svo bakari sem hætti að vinna vegna þess að hann er með ofnæmi fyrir hveiti. Það mætti halda að David Lynch hefði verið fenginn til að leysa Mikka af.

Annars er ég auðvitað ánægðastur með að þessu var skúbbað í litlum slúðurmola á mínum síðum í Fréttablaðinu. Það fer fátt fram hjá mér og mínu fólki og ég get nuddað töffurunum í slísinu upp úr því lengi að lítill moli hjá mér hafi inspírerað forsíðufrétt hjá þeim.
Annars á þetta auðvitað heima í DV sem sést best á því hversu penn ég þurfti að vera í framsetningunni mín megin:

Kvikmyndagerðarmaðurinn Böðvar Bjarki Pétursson sem fer fyrir kvikmyndafyrirtækinu 20 geitur er að leggja lokahönd á leikna heimildarmynd um ástandsárin á Íslandi. Myndin ku vera býsna djörf og þar sem 20 geitur eru ekki síst þekktar fyrir að framleiða funheitar og umdeildar heimildarmyndir á borð við Í skóm drekans og Mótmælandi Íslands er nýju myndarinnar beðið með nokkurri eftirvæntingu. Myndin er sem fyrr segir öll leikin og Böðvar Bjarki fékk þrjá hópa til að túlka þá sem mest koma við sögu. Föngulegar stúlkur, sem eru ófeimnar við að láta skína í bert hold, bregða sér í hlutverk ástandskvenna og fagurlimaðir og vöðvastæltir karlmenn sjá um að túlka hermennina sem heilluðu íslenskar stúlkur og urðu þannig drifkraftur ástandsins svokallaða. Þriðji lykilhópurinn í myndinni eru ráðamenn Íslands, forsætisráðherra, biskup og fleiri sem láta sig málið varða en menn sem hafa ýmsa fjöruna sopið í lífinu voru fengnir til að túlka landsfeðurna. Einn þeirra er Hákon Eydal og það verður varla til að draga úr áhuga fólks á myndinni að nafn hans hefur komið mikið við sögu í rannsókn lögreglu á dularfullu hvarfi 33 ára konu frá Indónesíu. Hákon var fyrrverandi sambýlismaður konunnar en í ástandsmyndinni fer hann með hlutverk forsætisráðherra Íslands.

Það er samt helst þegar maður fær svona gúmmilaði upp í hendurnar að mann langar til að vera DV blaðamaður enda oft stutt í Tóta slís þó ég hafi að mestu horfið frá villu minna vega.

EIR gerir Eydal að nokkurs konar næsta Marlon Brando og ef við gefum okkur að löggunni takist að geta í eyðurnar á rannsókninni á hvarfi vesalings konunnar þá endar hann kannski á Hrauninu. Þar verða þá fyrir miklir talentar í söngleikjauppfærslum og talsmaður fanga sem er vaxandi PR-maður þannig að það liggur beint við að setja upp Jailhouse Rock. Árni Johnsen mætir svo með kassagítarinn á frumsýninguna. Þetta steinliggur. The Producers: Part II


| 19:29 |
komment

Talandi um DV í dag þá máttu endilega segja þeim að ég heiti Óli Gneisti og það sé ekki neitt dulnefni. Eru Fréttablaðsmenn annars jafn fúlir við mig og DV?

Nr. 1 | Óli Gneisti | 14.07.2004 | 19:50:47 | [+] |

við viljum Lynch á DV, dvergurinn sem talar afturábak skrifar leiðarann!

Nr. 2 | SRÓ | 18.07.2004 | 14:23:04 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff