»  off record  »  I Must Break You....
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
I Must Break You....
Þriðjudagur, 27. júlí 2004

punisher.gifSex veruleikafirrtir guttar senda mér tóninn í Bréfi til (Morgun)Blaðsins í dag á blaðsíðu 21. Bréfið er stílað á "óvin fullkomnunnarinnar" og þar er þess krafist að ég biðjist opinberlega afsökunnar á því að hafa vegið að heiðri Dolphs Lundgren sem leikara í þessari grein um The Punisher.

Áður en við höldum áfram í tittlingaskítnum er rétt að minna á að FREE BOBBY síðan er komin upp. Smellið og kvittið, takk!

Það mun ég ekki gera og það lýsir dæmalausri fávisku að fara fram á að jafn annálaður hrokagikkur og ég biðjist afsökunnar yfirleitt. Það geri ég ekki, allra síst þegar ég hef rétt fyrir mér. Það er hins vegar alltaf gaman þegar pappakassar fara í fýlu út í mann og ekki versnar það þegar þeir fá útrás fyrir gremjuna á síðum Moggans. Samt leiðinlegt að maður fær aldrei viðbrögð við neinu sem skiptir máli en þegar maður drullar yfir málefnin.com , Dolph Lundgren eða eitthvað annað álíka fánýtt þá ærast alltaf einhver fífl.

Anyhu. Ekki get ég svarað þessum lúsablesum á síðum Moggans af þeirri einföldu ástæðu að ég tek Styrmi Gunnarsson mér til fyrirmyndar í málum af þessu tagi. Einu sinni fól Hrafn mér að fá viðbrögð Styrmis við leiðara Jónasar Kristjánssonar í gamla DV þar sem lítið var gert úr þeirri blaðamennsku sem stunduð er á Mogganum og Jónas kennir við "krana".
Styrmir gerði mér það skorinort ljóst að Morgunblaðið svaraði ekki fyrir sig annars staðar en á síðum Morgunblaðsins. Og Tóti svarar einungis fyrir sig á BadaBing! Svo einfalt er það.

Þessi umfjöllun um The Punisher var að hluta byggð á samtölum við sérfræðinga í myndasögubransanum og sú sögulega staðreynd var tíunduð að The Punisher var að mygla sem comix hetja þegar myndin með Lundgren kom og gerði ekkert til að bæta ímyndina. Þvert á móti var Castle gerður að bablandi leðurhomma sem drap fólk en átti annars ekkert sameiginlegt með Refsaranum.
Þá eru leikhæfileikar Lundgrens hafnir yfir allt sem heitir "huglægt mat". Hann er einfaldlega vonlaus. Verri en Van Damme og hápunkturinn á ferli hans var þegar hann fékk að ríða Grace Jones, ekki þegar hann sagði I Must Break You við Stallone í Rocky IV þar sem Stallone lék Bobby Fischer og Lundgren lék Spasskí.

Annars beini ég þeim vinsamlegu tilmælum til Odds Þorra Viðarssonar, Einars Óla Guðmundssonar, Einars Geirssonar, Magnúsar Friðrikssonar, Þórðar Steinars Hreiðarsonar og Antons Heiðars Þórólfssonar að þeir sýni hlýhug sinn í garð Lundgrens í verki, skeri af sér eyrun og þræði í hálsfesti (sjá Universal Soldier). Ég skal jafnvel ganga með það skraut í einn dag eða svo.

En það þýðir ekkert að biðja hrokagikk sem koxaði á 12 spora kerfinu þegar hann átti að gera siðferðisleg reiknisskil við alla sem hann hefur gert óleik í lífinu að biðjast afsökunnar á rökstuddum ummælum um hinn sænska Schwarzenegger. No way!

Bíð spenntur eftir að Mogginn birti samskonar opið bréf frá Félagi Fylgjenda Bens Afflecks en ég hef víst ekki farið leynt með þá óhagganlegu staðreynd (les: huglæga mat) að hann var vonlaus Daredevil.

Annars er fátt um þetta skemmtilega bréfkorn að segja annað en það að birting þess ber sorglegan vott um að vitiborið fólk sé hætt að senda blaðinu bréf fyrst það fundust dálksentimetrar undir þetta. En Mogginn hefur svo sem löngum fundið klikkhausum pláss á síðum sínum.


| 15:50 |
komment

ettu svona geðvondur í fríinu?

Nr. 1 | tómatsósa | 27.07.2004 | 16:54:42 | [+] |

Þú gerir þér grein fyrir því að þú ert að deila við 17 ára stráka?

Nr. 2 | Pulla | 27.07.2004 | 18:04:09 | [+] |

Það var hreinlega vandræðalegt að fylgjast með sjónvarpsfréttum í kvöld. Ekk eitt einasta orð um Hrafn Jökulsson! Hvað er að gerast? Ekkert um að hann sé að selja bækur. Ekkert um að hann sé með stjórnarfund í Hróknum. Ekkert um að hann sé að opna vefsíðu til að fá yfirlýstan gyðingahatara og viðurkenndan geðsjúkling til Íslands til að bæta á álagið á geðdeildum hér. Þetta er ferlega léleg fréttamennska. Maður verður að vita hvað Hrafn er að gera í dag. I want my HJ TV

Nr. 3 | Höf ók | 27.07.2004 | 19:12:55 | [+] |

Ég les síðuna þína reglulega og tel þig ferlega skarpan náunga..

Þess vegna finnst mér skrítið að þú skulir ekki sjá djókið í félagi fylgjenda Dolph Lundgrens. Það tók MR ekki nema hálfan mánuð að fatta hann.
Það þegar unglingar sem hafa ekkert betra að gera og "take a stand" með því að berjast með kjafti og klóm fyrir eitthvað jafn vonlaust fyrirbæri og Dolph blessaðann Lundgren... tja, það er fyndið.

Nr. 4 | Bara einhver | 27.07.2004 | 23:04:55 | [+] |

Dolph Londgren var feik Punisher, það vantaði hauskúpuna á bolinn hans, hollýwood gyðingarnir tóku hauskúpuna eitthvað inn á sig ergó engin hauskúpa.

Nr. 5 | Elvis2 | 28.07.2004 | 1:12:28 | [+] |

Haha; Þú ert skarpari en ég.

Nr. 6 | Bara einhver | 28.07.2004 | 15:40:10 | [+] |

Ég held að þú ættir aðeins að kæla þig niður á að reyna að pumpa þig upp í áliti þeirra örfáu sála sem eru svo óheppnar að villast inná þessa ómerkilegu síðu. Hún er lítið merkilegri en sjálfstæðissleikjupappírinn sem morgunblaðið er. Síðasta merkilega grein sem skrifuð var í Morgunblaðið var árið 1976 og merkilegasta grein þessarar síðu er ekki ennþá komin.
Að úthúða mönnum fyrir skoðanir sínar og kalla þá öllum illum nöfnum fyrir það eitt að líta upp til mikilmennis eins og Dolph sannlega er kalla ég fáfræði og jafnvel fordóma. Þó að það sé togað og ofnotað hugtak.

Nr. 7 | Gunnar Óli | 28.02.2005 | 2:03:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff