Föstudagur, 16. júlí 2004
Lét stappa mér eins og síld í tunnu á Sirkus í gær til að fylgjast með Tom Selleck keppninni.
Stormsker var í dómnefnd og að sjálfsögðu í stuði. Honum fannst staðurinn samt vera full stór og lagði til að þetta yrði næst haldið í aðeins minna pleisi Bankastræti 0 væri ákjósanlegt. Hann spurði hvor ég væri mikill áhugamaður um hormottur. Ekki vildi ég gangast við því en benti honum réttilega á að það væri vinnan mín að sýna bjánalegum hlutum áhuga.
Það besta við blaðamannsdjobbið er einmitt þetta eliment að það er alveg sama hvar maður er gripinn glóðvolgur þá virkar það alltaf sem afsökun. Maður getur spókað sig ósmeykur um mannorðið á Goldfinger, farið á lame stelpumyndir í bíó og borið höfuðið hátt, setið á Ölstofunni og jafnvel farið í meðferð.
"Heyrðu góði, hvað ert þú að gera hérna?"
"Ha, rísörtsj maður. Stór fítjör í vinnslu og hættu svo að trufla mig. Hvað ert þú annars sjálfur að gera með puttann ofan í þonginu hjá Naomi? Viltu tjá þig um það on record?"
Skothelt en kemur ekki í veg fyrir það að mér líður alltaf eins og fávita í IKEA. Engin afsökun eða réttlæting er nógu stór. Fari maður í IKEA er maður smáborgari and that´s it.
Slapp lifandi úr þvögunni á Sirkus og fékk mér kaffi á Ölstofunni (knæpur og kaffihús eru gósenlönd fyrir blaðamenn og í raun ættum við að vera þar öllum stundum. Allt sem ég hleraði að þessu sinni var þó tótallý end ötterlý off record. Hate it when that happens).
Á Ölstofunni voru þessi, þessi og hinn en mest kratar þó. Fyrrum kratinn Stefán Hrafn Hagalín spurði mig hvort það væri ekki örugglega rétt að ég ætti best dokúmentaða "hætt" (as in drekka) á BadaBing! Held það svei mér þá en stóð að vísu í þeirri meiningu að minn alkóhólismi væri sá best dokúmentaði ever. Ekki vildi Hagalín samþykkja það.
Eníveis. Sá Tóti sem birtist honum á BadaBing! er and-Hlynur Björn. Hvað í fjandanum þýðir það? Eini botninn sem ég fæ í þessa kenningu er sá að ég hljóti að vera hetja. Það er að segja ef Hlynur Björn er and-hetja þá er ég and-and hetja eða með öðrum orðum hetja. Og þá væntanlega rómantísk hetja dæmd til þess að vera úti í kuldanum lengi, lengi áður en ég dey einn og bitur eins og Brando.
Þetta er yndislegt líf.
| 20:41 |