»  off record  »  Vegbúinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Vegbúinn
Miðvikudagur, 07. júlí 2004

Liðinu í vinnunni fannst að ég ætti að hætta snemma í gær í tilefni edrúdagsins. "Farðu heim, Tóti" var eitthvað sem ég fékk að heyra ansi oft yfir daginn. Bjánalegt að reka mann heim sem á hvergi heima.

Nánustu vinnufélagar mínir eru farnir að þekkja ritúalið þannig að ég gaf loksins eftir um klukkan 18 þegar Svanborg beinlínis skipaði mér að koma mér í Nexus.
Planið var að kaupa Blackadder á DVD í staðinn fyrir comix að þessu sinni, ekki síst til að flýta fyrir lausn forræðisdeilunnar sem við Anna stöndum í um uppáhalds vídjóin okkar. Fólk segir að við séum skrýtin vegna þess að við getum skilið eins og manneskjur þar til það kemur að myndböndum. Nú er allt morandi í hörðum forræðisdeilum (fylgist með forsíðum DV og Séð og heyrt) þar sem fólk ætlar að drepa hvort annað, ömmur og afa og líklega börnin líka vegna forræðisdeilu. Þá finnst mér nú ég og Anna heilbrigðari þar sem við getum gert þetta án þess að rífa börnin í tvennt um leið.
Annars gleðja þessar skilnaðar- og forræðisdeilufréttir mig ósegjanlega enda renna þær stoðum undir þá gömlu kenningu mína að stærstu mistök sem nokkur manneskja getur gert er að eignast börn, næst verst er að gifta sig.
Bladder var uppseldur þannig að ég fjárfesti í helling af góðu comixi í staðinn: Transmetropolitan með fyrirmyndarblaðamanninum Spider Jerusalem, DD Ninja á lækkuðu verði, Sleeper, síðustu Elektrubókina eftir Rodi og Streets of Laredo með The Punisher.
Aðalatríðið í þeirri bók er þegar Elektru leiðist þannig að hún byrjar að drepa alla glæponana á undan Punisher sem verður drulluhræddur um að hún sé á eftir honum. Elektra er nefnilega deadlier than The Punisher og hann veit það sjálfur að hann á ekki séns í gelluna. Heldur samt kúlinu og bíður henni út að borða.
Frá Nexus lá leiðin á Ljóta andarungann en ég hætti við að drekka kaffið þar sem það var allt morandi í túristum að borða kvöldmat. Brennslan var augljós kostur og síðan borðaði ég með Beggudætrum. Saman eru þær hættulegri en Elektra og andrúmsloftið við borðið var vægast sagt rafmagnað þegar þeim laust saman. Það var þó vel við hæfi að borða með þeim þó það reyndi á meðvirknina þar sem það var nú einu sinni Silja sem sótti mig að morgni 7. júlí 2003, keyrði mig á Teig og sagði: "þetta verður allt í lagi."

Hættur að reykja þannig að ég gæti orðið einhvejrum að bana á næstu dögum. Það er ekkert jafn geðveikislega stuðandi og tóbaksfráhvörf. Brennivínið er walk in the park.


| 19:26 |
komment

2,3 og 4 sería af black adder fæst í eymó. einkar mikil tilviljun að ég keypti þær allar í kvöld. :)

Nr. 1 | beta | 8.07.2004 | 1:49:54 | [+] |

Kannski maður hætti líka að reykja, en ég á eiginlega of mikið af sígarettum til þess.

Nr. 2 | thors | 8.07.2004 | 14:13:14 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff