Eight million ways to die
Miðvikudagur, 18. ágúst 2004
Lifði Grænland af og mun gera ferðina upp síðar en hápunkturinn er án efa þegar mér var hent út af grænlenskum pöbb. How cool is that?
Lágpunktur gærdagsins var án efa þegar ég borgaði í bíó í fyrsta skipti frá árinu 2000. Það kostaði 800 kall!! Stóð andspænis þessari staðreynd eftir að ég fattaði að ég gleymdi pressupassanum og þurfti að gera það upp við mig hvort ég ætti að hætta við og fara á kaffihús frekar en að blæða fyrir Hellboy.
Er að koma mér fyrir í piparsveinaíbúðinni. Forseti Hróksins málaði svefnherbergið og blessaði það með þeim fyrirbænum að þar yrði mest action í húsinu.