»  off record  »  Gleðin í þjáningunni
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Gleðin í þjáningunni
Föstudagur, 27. ágúst 2004

powerpuff-hufa.gifÉg hef verið að fá góð viðbrögð við Stuð milli stríða pistlunum og fæ ekki betur séð að ég sé að byggja upp traustan fanbase. Mesta upphefðin var vitaskuld þegar Illugi endurbirti þennan í DV. Fékk auðvitað sjokk þegar ég frétti að DV væri að leita að mynd af mér og taldi víst að nú væri einhver saga um að ég legðist á börn komin af stað.

Létti stórlega þegar ég sá blaðið daginn eftir og var bara helvíti ánægður enda tilheyra þeir bræður Hrafn og Illugi ákaflega þröngum hópi fólks sem ég virði viðlits þegar það kemur að gagnrýni á stíl og gæði pistla. Hrafn ýtti mér auðvitað meira og minna út í pistlaskrif og færði mér kompliment frá flestum sem ég tek mark á þegar ég birti besta pistilinn sem ég skrifaði á Strik.is.

Eníveis. Hrósin sem ég hef verið að fá fyrir Stuðin ganga flest út á það að pistlarnir séu svo fullir af sjálfsvorkun, þunglyndi og lífsleiða að það lifnar yfir öllum sem eiga bágt og lesa vegna þess einfaldlega að blessað fólkið getur alltaf huggað sig við að mér líður verr en því. Minn gamli mentor Ásgeir Friðgeirsson er auðvitað búinn að kveikja á því að þessi barlómur er stílbragð og það sem þetta ágæta fólk klikkar á er að mér líður bara andskoti vel. Lærði það af nefnilega af gamalreyndum kollega (EIR?) mínum að skrifa í einlægni þó allt sé haugalygi.

Uncle Junior (besta persónan) í Sópranós snappaði einu sinni á Tony þegar hann var eitthvað að djóka með hægðatregðuna hans eða eitthvað álíka. Þá sagðist sá gamli gleðjast yfir því að "my suffering is yout source of amusement".
Ég er hins vegar ekki tilbúinn til þess að þjást fyrir aðra, hvort sem það er í plati eða alvöru, og þess vegna verður næsti pistill um það hversu mér finnst haustið æðislegt og hvað það er kósi að vakna ferskur við fuglasöng klukkan 7 á morgnana, synda og éta Skyr.is áður en ég valhoppa út á stoppistöð og syng, eins og John The Whistler: No matter what they say now I´m in love."

And now the million dollar question: "Er maðurinn að ljúga núna?"


| 1:37 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff