»  off record  »  Hugleiðingar yfir tvöföldum viskí
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hugleiðingar yfir tvöföldum viskí
Mánudagur, 30. ágúst 2004

goldfinger1.gifTalandi um James Bond þá gerði ég góða ferð til Ara Gísla í Bókavörðuna um daginn þegar ég fann þrjár Bond bækur í íslenskri þýðingu. Öðlingurinn hann Ari Gísli seldi mér þær auðvitað á slikk og nú á ég aftur Demantar eyðast aldrei (Diamonds are Forever), Náttfara (Moonraker) og Þrumufleyg (Thunderball).

Safnaði þessu í gamla daga og þræddi þá fornbókaverslanirnar reglulega. Hef svo glatað þeim í gegnum árin með því að lána þær vinum og kunningjum. Tókst samt alltaf að varðveita Goldfinger (sem er líklega sú besta) en hún hefur ekki skotið upp kilinum í flutningunum. Líklega horfinn eins og restin.
Demantar eyðast aldrei kom út hjá Bókaútgáfunni Hildi árið 1968. Á bakhliðinni segir:

007 Heimildin til að drepa í þágu Leyniþjónustunnar, tvöfalda núllið, var mikill heiður. Það varð að afreka mikið til að öðlast hana. Hún varð líka til þess að James Bond hlaut einmitt þau verkefni, sem hann kaus helzt - þau hættulegu.

Úlala!

Flemming náði mestum skáldlegum hæðum i Goldfinger og þá helst í fyrsta kaflanum sem hét Hugleiðingar yfir tvöföldum viskí eða eitthvað álíka. Þar blúsar Bond á flugvallarbar og veltir fyrir sér hvað hrærist í hugum smáborgarana sem eru líkt og hann sjálfur að bíða eftir flugvélum. Verð að finna þessa bók eða eignast hana aftur.

Annars er ég hrifnastur af þessum íslensku Bond bókum fyrir þær sakir hversu textinn er orðinn pólitískt rangtþenkjandi og úr sér genginn. Þannig verð ég að koma klónum í Manninn með gylltu byssuna en í skýrslum leyniþjónustunnar um Scaramanga verður mönnum tíðrætt um "kynvillu" hans. Þetta myndi aldrei ganga í dag og í enduskoðaðri þýðingu yrði þessi hættulegasti leigumorðingi í heimi vitaskuld einfaldlega "samkynhneigður".

Það er rosa remba í Bond og þannig þverneitaði minn ágæti sósíalíski grunnskólakennari að lesa Bond bækur í nestistímanum þegar Kalda stríðið var í gúddí fílíng. Christoper Cool í einhverjum bjánabókum fékk aftur á móti náð fyrir augum hans. Það þótti okkur félögunum undarlegt og glatað.


| 23:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff