Sunnudagur, 08. ágúst 2004
07.08 2004
Í gær gerðist það! Ég sá sæta grænlenska stelpu og eina alvöru kjagandi fyllibyttu. Mér líður betur. Fagnaði edrúafmælinu með því að greiða sjö danskar krónur fyrir versta kaffibolla sem ég hef smakkað á.
Drakk kaffið svo einn með sjálfum mér á meðan ég hugsaði upp leiðir til að komast hjá því að taka þátt í skákmótinu (update: það tókst með þeim rökum að ég væri blaðamaður sem ætlað væri að fjalla um mótið og mætti því ekki tengjast því tilfinningalega).
Átti ánægjulegt spjall við sígarettupakkann minn:
Pakki: "Smoking kills."
Tóti: "Really?"
Pakki: "Smoking causes fatal lung cancer."
Tóti: "Really? So, what else is new."
Sígarettupakkar hafa það fram yfir margt fólk að á þeim eru tvær hliðar.
Alltaf stuð í Tasiilaq.