Föstudagur, 06. ágúst 2004
... eða Grænlandsævintýrið - Part III
06.08.2004
Beibustatusinn rauk upp í Tasiilaq í gær þegar skákdrottningin Regina mætti á svæðið (þeir sem vita ekki hversu sæt Regina er geta fundið hana hérna á Wall of Fame. Við erum bæði með hönd undir kinn). Stuðstatusinn hækkaði einnig verulega þar sem Didda var í sömu þyrlu. Ég gerði mér einnig vonir um að aðal partíanimalið Jakob myndi koma og stóð eins og ástsjúk stúlka á þyrlupallinum. Hann var ekki með þannig að ég hélt ég myndi fara að gráta en þá sá ég drottninguna og skáldið og gleymdi öllum raunum mínum. Jakob who?
Hitti Reginu á veröndinni í hádeginu og hún sagði mér frá litlu sætu selunum sem hún sá dregna drepna á land fyrr í morgun. Það var tregi í röddinni. Við fórum svo í hádegismat og fréttum að það væri selur í matinn. Á okkur runnu í það minnsta tvær grímur og það hlýtur að hafa verið mögnuð sjón að sjá hina undurfögru skákkonu og þunglynda blaðamanninn fetta upp á trýnin í dyragættinni en lyktinni verður ekki með orðum lýst.
Fjöldi fólks taldi í okkur kjark og við réðumst til inngöngu. Þar mætti Kolla okkur glaðbeitt í meira lagi enda hæstánægð með trakteringarnar. Við settum smá bita af litlum sætum selum á diskana okkar. Regina tók einn bita: "I can´t eat this." Greip epli og hljóp á dyr með peysukragann fyrir vitunum. Ég barðist aðeins lengur við minn selsklump. Ekki beint góður en alls ekki vondur. Meyrt kjöt en mér fannst seigi hvalurinn sem var á borðum í fyrradag mun betri. Kolla fúlsaði hins vegar við honum.
Ég var fenginn til að setjast að tafli í nýmálaða mótsalnum í gærkvöld þegar Ómar var að finna rétta sjónarhornið fyrir myndatöku. Andstæðingur minn lék skyndilega út peði og ég var allt í einu byrjaður að tefla. Það fór um mig hrollur þar sem ég byrjaði að læra í fyrradag og þetta var önnur skákin mín. Þetta fór þó allt á besta veg þar sem Regina kom mér til bjargar með öll tvöþúsundþrjúhundurðogeitthvað ELO stigin sín. Það er skemmst frá því að segja að ég malaði andstæðing minn með þeirri aðferð að Regína hló og sagði "nei, nei" í hvert sinn sem ég hugðist leika og benti mér svo á hvað ég ætti að gera. Ég er einhverra hluta vegna skráður á Greenland Open sem byrjar síðdegis. Það er ekki gott þar sem Regina er einnig að keppa og má varla vera mikið að því að hjálpa mér. For the record held ég svo að sjálfsögðu með henni.
Didda fór á kostum á leiðinni heim í gær. Spangólaði ákaft og náði að trylla hundahjörðina í Tasiilaq á no time þannig að skyndilega lék bærinn á reiðiskjálfi þegar rúmlega 1000 úlfhundar svöruðu kalli drottningar sinnar. Didda má drekka bjór en ekki ég en samt tekst okkur að í sameiningu að vera í banastuði og munum finna Klúbbinn hans Ingó í kvöld.
13 mánaða edrúafmæli í dag og ég er staddur í Fyllibyttulandi. Ótrúlegt. Geri ráð fyrir að fresta hátíðarhöldum þar til ég kem til Reykjavíkur. Kaffihúsið sem ég hef þegar lýst jafnast ekki á við Andarungann og hér er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir Nexus. Eina alvöru comix bókin sem er til sölu hérna er Ghost World en svo má fá 2 Lukku Láka bækur á dönsku.
| 15:43 |