»  off record  »  Misery
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Misery
Fimmtudagur, 05. ágúst 2004

03.08.2004

Sit við gluggann á heimavistinni og hlusta á óteljandi hunda spangóla. Hér rétt fyrir ofan er himinhár moldarbingur sem iðar allur af hundum. Þeir eru fallegar skepnur þessir hundar enda náskyldir úlfum en þeim leiðist greinilega eins og mannfólkinu hérna.

Við lentum í Kulusuk en þar búa um 100 manns, allir þunglyndir, og eymdin er alls ráðandi. Þetta umhverfi og andrúmsloft á svo vel við okkur Kollu Bergþórs að við erum að hugsa um að setjast þar að eða í það minnsta að fá okkur sumarhús.
Flugum síðan með þyrlu (heví kúl) til Tasiilaq sem hér áður Ammasalik en mér skilst að bæir á Grænlandi megi ekki heita í höfuðið á dauðu fólki og því varð að skipta um nafn þegar hann Ammasalik dó. Þessu má hins vegar redda með því að gefa hundi sama nafn og þá getur bærinn tekið nafnið upp að nýju.
Það búa um 1800 manns í Tasiilaq og það er hægt að kaupa bæði brennivín og haglabyssur í kaupfélaginu en eins og margir vita eru skotvopn og bús óaðskiljanleg fyrirbæri á grænlenskum fylliríum.
Mér skilst að hér sé fólk meira og minna alltaf fullt enda ekkert annað hægt að gera. Fyrir 13 mánuðum stóð ég frammi fyrir tveimur kostum, báðum slæmum auðvitað; annað hvort myndi ég flytja til Grænlands þar sem ég myndi falla vel í fjöldann og líta út fyrir að vera dannaður drykkjumaður. Hinn möguleikinn var að fara í meðferð og nú þegar ég er kominn til höfuðlands áfengissýkinnar hallast ég að því að ég hafi valið skárri kostinn.

Eníveis. Þetta eymdarbæli er svo subbulegt að það er með ólíkindum (fullt fólk sér nefnilega yfirleitt ekki ástæðu til að huga að umhverfi sínu), maður veður ruslið, bjórdósir, sígarettustubba, ónýt leikföng, brotin vatnssalerni, notaða smokka og bleyjur upp að hnjám.
Meira að segja Reykjavík, sem er að verða viðbjóðslegur forarpyttur undir stjórn R-listans, virðist snyrtileg í samanburðinum en maður fær samt ákveðna innsýn í Reykjavík framtíðarinnar hérna í Tasiilaq.
Það leynir sér ekki að mannsandinn þrífst illa í subbuskap þannig að framtíð Reykjavíkur sem er að breytast í andlega eyðimörk er ekki björt. Reykjavík á þó enn beibur en ég hef öngva af þeirri tegund séð hér. Skaparinn, hver svo sem hann er, hefur ekki verið að leggja mikið upp úr útlitinu þegar hann setti þetta blessaða fólk saman. Börnin eru að vísu falleg og ofboðsleg krútt en það eldist greinilega hratt af þeim.


| 12:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff