Fimmtudagur, 05. ágúst 2004
04.08.2004
Vaknaði við hundaspangólið klukkan 8. Fékk mér 2 Prins Póló í morgunmat. Nú eru aðeins 2 PP eftir af þeim sem ég kom með með mér og góð ráð eru dýr þar sem Prins Póló fæst ekki á Grænlandi.
Það hefur valdið mér umtalsverðum vonbrigðum að rekast ekki á neinar fyllibyttur og ég er farinn að draga sögusagnir af ótæpilegri drykkju Grænlendinga stórlega í efa. Enn leiðinlegra þykir mér að vera ekki búinn að finna Meg Ryan en ef hún er hérna á annað borð þá hljóta hinir öflugu rannsóknarblaðamenn Kolla Bergþórs og Tóti the fixer að finna hana.
Ég hef heldur ekki fundið neinn bar sem er fúlt þar sem ég beið spenntur eftir að smakka á grænlenskri krárstemningu en félagar mínir sem voru á öðrum enda landsins í fyrra drukku á alvöru krá þar sem flatlýsnar iðuðu í andlitum innfæddra sem allir lágu dauðir fram á borðin fyrir utan tannlausu, feitu kerlinguna sem hösslaði grimmt.
Það ku þó vera varasamt að sofa hjá á Grænlandi. Hættan er að vísu ekki mikil þar sem hér er ekkert lystugt í boði en Halli gamli á bensínstöðinni sagði mér í gamla daga að það yrði að nota mörg lög af smokkum þar sem pöddurnar í grænlensku klofunum færu hæglega í gegnum tvöfalt lag af gúmmíi.
Brynja Ben er hérna með okkur og hefur svipaða sögu að segja en þegar hún kom hingað fyrst 1973 fæddust börnin með syfilis og konurnar settu pilluna á milli hnjánna.
Eina kaffihúsið hérna opnar klukkan 14 og lokar klukkan 17 og býður upp á uppáhelling sem er hreinn viðbjóður. Kaffihús er að vísu overstatement en þetta er smá skonsa þar sem litlar stelpur selja muffins, kaffi og gos. Eitthvað súkkulaði er þarna líka á stangli.
Annars er það helst að frétta að ég er byrjaður að læra að tefla. Ketill Larsen tók fyrstu kennslustundina og ég var engu nær. Lærði að vísu að "riddarinn er skrítinn kall." Ketill bullar út í eitt að hætti trúða og jólasveina.
Einnig gaman frá því að segja að minn gamli heimabær, Kópavogur, er vinabær Tasiilaq. Aldrei þótti mér mikið til Kópavogs koma en hann er þó skárri en Tasiilaq. Þeir eru að vísu svo kurteisir hérna að þeir hafa sýnt Kópavogi þann sóma að nefna götu eftir honum. Hún heitir Kopavogyrvej. Ekki minnist ég þess að Kópavogur hafi gert slíkt hið sama og ég man í það minnsta ekki eftir neinni Tasiilaqtröð heima.
| 13:14 |