»  off record  »  Tómt píp?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tómt píp?
Mánudagur, 09. ágúst 2004

eroticshow.gifBadaBing! skúbbaði því að sínum tíma að Geiri á Goldfinger ætlaði að opna peepshowbúllu og ég átti ekki í vandræðum með að færa rök fyrir því að þetta væri snjallt útspil hjá kallinum. Nú vita þeir sem ekki lesa DV það ef til vill ekki að Geiri hefur opnað peepshowið undir merkjum Maxim´s á Frakkastíg en borgaralegu blöðin hafa, mér vitanlega, ekki séð ástæðu til að greina frá þessum tímamótum.

Ég skrifaði samt þessa peepshowfrétt í sumarfríinu og ræddi í kjölfarið við tvær erótískar listdanskonur sem ég kannast ágætlega við. Önnur sagði að peep-ið væri tómt píp og hún myndi aldrei taka þátt í því. Hún hafði svo sem ekkert á móti því að liggja á brókinni og snúast eins og Perlan fyrir framan graða karla á bak við gler en fann peep-inu það helst til foráttu að skortur á "nálægð" kæmi í veg fyrir að hægt væri að "pleyja" kúnnann almennilega en eins og allir vita verður einkadansinn dýrari eftir því sem hann er lengri.
Hin stúlkan er mikil brandarakelling og sagði einfaldlega: "I think peepshow is okay - for sick people." Svo mörg voru þau orð og síðan hló hún dátt.
Ég stend þó enn við mínar meiningar um peep-ið þrátt fyrir að hafa fengið þetta innsæi í málið og svo má auðvitað bæta því við að þessi ágæta vinkona mín sem vill "pleyja kúnnann" tekur ekki með í reikninginn að á meðan hún er að spila með einn mann getur gellan í peepshowinu, á góðri stundu, verið að hössla 15 manns í einu og þarf ekki að halda aftur af ólmum lúkum á meðan.
Það fylgdi einnig sögunni að finnskar dansmeyjar væru tilkippilegastar í peepshowið enda hefði það tíðkast í Finnlandi um árabil þar til það var bannað nýlega, að því er mig minnir. Þær kalla víst heldur ekki allt ömmu sínar þessar finnsku.
Talandi um strípibúllur þá er gaman að segja frá því að ég fann helgarútgáfu Politiken, frá því í maí, uppi á heimavist. Þar var frétt um 52 ára gamlan mann sem vildi inn á súlustaðinn Venusbar við GI Kongevej. Kappinn var vopnaður 7.65 kalibera skammbyssu og sagðist vera lögreglumaður. Dyravörðurinn tók manninn mátulega trúanlegan og hringdi á alvöru lögregluna sem fjarlægði kauða. Ekki er vitað hvað maðurinn hélt að hann fengi út á það að vera vopnuð lögga á súlustað og í fljótu bragði fæ ég ekki séð að slík staða breyti neinu þar sem staða manna í mannvirðingastiganum ræðst ekki af vopnaburði heldur fjárhagsstöðu.


| 17:03 |
komment

þér og þínum er boðið í partý.

http://abuse.is/web/beta/index.php?m=200408#490

Nr. 1 | beta | 9.08.2004 | 17:42:31 | [+] |

Gægjuleikhús hafa ekki verið bönnuð í Finnlandi og eru hvergi bönnuð í hinum vestræna heimi en samkeppni súlustaða og" peep við þessarar svokölluðu bændagistingu í Finnlandi þar sem þjónustustúlkur frá Rússlandi og reyndar fleiri löndum þjónusta viðskiptavini tröllríður Finnlandi í dag er það vegna góðs samkomulags Austur Evrópu og Finnlands hefur valdið því að aðsókn er lítil á súlustöðum og engin í peepinu

Nr. 2 | Helgi Bersi | 22.08.2004 | 10:32:20 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff