»  off record  »  Egó
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Egó
Miðvikudagur, 15. september 2004

Ég hef aldrei fílað Bubba sérstaklega, ekkert frekar en íslenska tónlist yfirleitt, en eftir nokkra yfirlegu og rannsóknir hef ég komist að þeirri niðurstöðu að Egó sé besta íslenska hljómsveit sögunnar og Móðir því besta lagið.
Magnaður hrollur á heiðinni og þetta lag er gætt sömu eiginleikum og Don´t Look Now eftir Roeg en alltaf þegar ég sé þá mynd eða heyrði lagið hans Bubba verð ég hræddur um börnin mín.

Sá Ego live þegar eðalkrimminn Villi Svan opnaði Vilta Tryllta Villa (djöfull er maður orðinn gamall). Þeir voru helvíti þéttir og staðurinn þoldi varla blastið og feitt tjúttið.
Stórir strákar fá raflost býr líka yfir einhverjum tímalausum sjarma og það er eiginlega betra nú en þá. Kannski vegna þess að þegar það var vinsælt hafði ég ekki enn kynnst stelpu sem varð óð og drakk úr mönnum blóð. Hafði heldur aldrei hitt lækninn sem er miðaldra með grá augu eins og frægt er orðið. Þá höfðu gangastúlkur heldur aldrei skellt mér með látum í gólfið og sagt að ég væri einn af þeim. Það var samt byrjað að tuða í mér að ég yrði að vera rólegur, ég æsti upp öll hin.

... síðan fékk ég raflostið og er orðinn eins og öll hin.

Þessa dagana vakna ég oftast þreyttur, varla með sjálfum mér og kann því vel að meta texta Bubba en mannandskotinn er alltaf eitthvað voða mikið að vakna í lögunum sínum.

Aldrei fór ég suður er aðal þunglyndislagið mitt enda skammdegisþunglyndur og alltaf að bíða eftir sumrinu og það þarf varla að taka það fram að sú bið er löng og ströng:

Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér,
en ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér.
Og þrá mín hún vakir, meðan þokan byrgir mér sýn.
Mig þyrstir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín.

Svo vaknar maður auðvitað í Stál og hníf:


Þegar ég vaknaði um morguninn
er þú komst inn til mín.
Hörund þitt eins og silki
andlitið eins og postulín
Við bryggjuna bátur vaggar hljótt,
í nótt mun ég deyja.
Mig dreymdi dauðinn segði komdu fljótt
það er svo margt sem ég ætla þér að segja.

[...]

Stál og hnífur er merki mitt
merki farandverkamanna.
Þitt var mitt og mitt var þitt
meðan ég bjó á meðal manna.

Mín versjón er svona...

Mál og stíll er merki mitt
merki blaðamanna.
Þitt var mitt og mitt var þitt
meðan konan mín hét Anna.


... en það er útúrdúr. Punkturinn er að Egó rúlar og Bubbi á sín móment.


| 19:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff