»  off record  »  Forheimskandi kynlíf?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Forheimskandi kynlíf?
Miðvikudagur, 29. september 2004

Prófarkalesararnir á Fréttablaðinu hafa mig grunaðan um að stunda óhóflegt kynlíf um þessar mundir en þetta ályktuðu þeir út frá gríðarlegum fjölda innsláttar- og stafsetningarvillna sem menga allt sem ég sendi frá mér þessar vikurnar.

Chuck Spelling orðaði þetta eitthvað á þá leið að þegar maður sem alla jafna skilar óaðfinnanlegum texta byrjar að skrifa með olnbogunum þá sé eitthvað að gerast pa sengekanten.
Þvættingur sagði ég og benti á að jafn stílfimur snilldarpenni og undirritaður geti skrifað óaðfinnanlega hvort sem hann er drullufullur, skelþunnur eða ofvirkur í kynlífinu. Eftir klúður þriðjudagsins fer ég að hallast að því að Spelling hafi eitthvað til síns máls en þá slengdi ég því fram í hinum títtnefndu 100.000 eintökum að Leifur heppni hefði átt öndvegissúlurnar. Ég get hvorki útskýrt þetta né afsakað með nokkru móti en reyndi að kenna próförkinni um þetta. Spelling fól andlitið í höndum sér þegar ég reyndi þetta lúalega trix og gargaði á mig að það væri mitt að vera með staðreyndirnar á hreinu. Fair enough.
Dettur helst í hug að Leifur hafi slæðst þarna inn þar sem ég er enn með hugann við Grænland.
Hef samt fengið lítið af athugasemdum og álykta að það sé vegna þess að allir vita að ég veit betur og þetta hafi verið einhver brenglaður, djúpur en illskyljanlegur Tótahúmor. Það er samt alltaf leiðinlegt að bregðast foreldrum sínum og pabbi hringdi auðvitað í mig og spurði hvað þetta stönt hefði átt að þýða? Honum svelgdist á morgunkaffinu enda kenndi hann mér nú betur en svo að hann ætti þetta skilið. Hefði þetta verið WWII staðreyndarvilla hefði hann sennilega ekki staðið upp aftur.
Hef ekki valdið pabba svona miklum vonbriðgum síðan ég klikkaði á arabastríðsspurningu þegar ég var símabjáni í Viltu vinna milljón. Þá fékk ég líka upphringingu og hann spurði mig hvað þetta hefði átt að þýða. Þá gat ég falið mig á bak við það að ég var fárveikur í hitamóki uppi í sófa þegar Þorsteinn J. hringdi og það var búið að vara keppandann við því að stóla á mig í því ástandi. Ég er hins vegar enn puzzled yfir þessu með Leif.
Amma hringdi út af þessu í kvöld. Hún hefur alltaf tröllatrú á mér og vildi að ég skýrði djókinn og reyndi að gera gott úr þessu þegar ég upplýsti hana um að ég hefði klikkað. Amma er rock solid.


| 22:41 |
komment

Talandi um Grænland Tóti.. Er en með þennan útfaraborða sem þú baðst mig að kaup og kostaði heilar 1500 kr!!! Nei en allavega þá hef ég ekki mikil not fyrir hann ennþá þó ég hafi velt því tölvert fyrir mér hvernig ég gæti notað hann. Þú ert nefnnlega augljóslega alveg búinn að gleyma honum. Bara svona vildi minna þig á hann. Kannski ég láti bara Hrafn geyma hann niðri í Hrók. Er það ekki?

Nr. 1 | Guðrún | 30.09.2004 | 13:17:06 | [+] |

Það hlaut að vera að Hrafni Jökulssyni yrði komið að. Ég var farin að hafa áhyggjur.

Nr. 2 | bubbi | 30.09.2004 | 13:44:12 | [+] |

Þetta er einmitt eitthvað sem Hrafn myndi segja ef hann fengi ekki að vera í sviðsljósinu

Nr. 3 | bubbi | 1.10.2004 | 10:45:01 | [+] |

Ég er ansi hræddur um að þessi Bubbi sé ekki eins vel gefinn og andlega stilltur og hann Ásbjörn okkar. Þar er góður drengur á ferð.

Nr. 4 | Dr. Schnitzel | 2.10.2004 | 8:11:09 | [+] |

Hver er þessi Hrafn?

Nr. 5 | Ingólfur | 4.10.2004 | 10:38:41 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff