Þriðjudagur, 21. september 2004
Ástþór er í körfubíl fyrir utan gluggann á annarri hæð Fréttablaðsins að taka papparassamyndir. Kallinn er í góðu stuði með þönder flotta myndavél. Mér líður samt soldið eins og mér hafi verið nauðgað af því hann tók mynd af mér. Hann heldur að vísu að Fréttablaðið sé DV þannig að við á borgaralega blaðinu erum höfð fyrir rangri sök á meðan ritsóðarnir standa í skjóli eins og Hannes á horninu og sleppa við allt.
Við komum með krók á móti bragði og Teitur rauk til og tók papparassamyndir af Ástþóri in action. Hann mun væntanlega kæra þann gjörning. Þarna sannast samt það fornkveðna að geðsjúklingar geta öðrum fremur brotið upp hversdaginn.
Þetta er fyndið stönt og öllu skárra að gera einkalífsárás á ritstjórn en heimili en ég finn mikið til með Illuga og frú þeim hlýtur að hafa liðið eins og Gretti þegar þessi stóru augu birtust á stofuglugganum. Glámur er líka pís of keik miðað við Ástþór.
Ástþór fann DV gluggana fyrir rest og strákarnir tóku honum auðvitað vel og buðu honum að skríða inn um gluggann en hann afþakkaði fannst skemmtilegra í körfubílnum.
Go Ástþór! (það má leggja a.m.k. tvöfaldan skilning í þessa upphrópun).

| 14:07 |