Miðvikudagur, 08. september 2004
Upphrópunin hnajh hnjah er ein besta pikköpplína ever, það er að segja ef hún er notuð rétt og gögguð með þeim kynþokka sem gat sett í þetta fyrir rúmum áratug.
Hélt ég myndi nú aldrei heyra þetta framar og krossbrá því að vonum einn morguninn þar sem ég stóð á planinu við Shellstöðina á Birkimel, reykti og beið eftir leigubílnum sem ég pantaði eftir að hafa sofið yfir mig. Þegar rettan var hálfnuð heyrði ég hljómþýða konurödd fyrir aftan mig segja "hnjah hnjah" og hélt vitaskuld að mig væri að dreyma.
Skemmtilegt frá því að segja að þetta var Linda, fornvinkona mín, sem kom mér svona skemmtilega í opna skjöldu og sneri gömlu tafli við vegna þess að hlutverkum okkar var akkúrat öfugt háttað þegar ég kynntist henni fyrir 15 árum. Bjútí partið í þessu er nefnilega að þegar Linda var 16 ára stóð hún ásamt gelluvinkonum sínum við Lækjargötuna í frekar fúlu veðri þegar gamla gengið mitt renndi fram hjá. Einhverra hluta vegna var ég ekki að keyra en rak augun í þessa gullfallegu ljóshærðu stúlku sem bar höfuð og herðar yfir allar stelpurnar sem voru með henni þó þær væru allar svokallaðar beibur. Það var ósjálfrátt viðbragð sem fékk mig til að garga á Hauk að stöðva bílinn. Haukur var mjög hættulegur með það að ef maður bað hann að stoppa nauðhemlaði hann og það var nákvæmlega það sem hann gerði fyrir framan stelpurnar. Ég stakk hausnum út um hliðarrúðuna, setti flagaraglampann í augun og gaggaði "hnjah hnjah" og eftir stystu samningaviðræður sögunnar voru stelpurnar komnar upp í bílinn.
Hópurinn er auðvitað margsplittaður síðan þá þó við Linda séum enn vinir. Þetta er fallegsta "hnjah hnjah" minningin mín og Linda (sem byrjaði með Hauki en ekki mér) er án efa dýrmætasta manneskjan sem ég kynntist með þessu bragði mínu.
"hnjah hnjah" verð að vígópi klíkunnar sem eyddi nokkrum geggjuðum mánuðum saman áður en brestirnir fóru að segja til sín en "hnjah hnjah" hélt áfram að virka á rúntinum en við Ingvar hættum að telja þegar ég var kominn yfir 100 stelpumarkið upp í Galantinn.
here´s looking at you kids
hnjah hnjah
| 21:55 |