»  off record  »  Þið munuð öll deyja...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þið munuð öll deyja...
Mánudagur, 06. september 2004

Þvert á allar kjaftasögur þá er drykkjuskapur ekki ásæðan fyrir þessari þrúgandi sex daga þögn. Gerði lokaorð bíómyndarinnar Good Will Hunting , sem hálfbjánarnir Matt Damon og Ben Affleck skrifuðu, að einkunnarorðum mínum og hef því verið ansi upptekinn og get nú gert hina sígildu lokalínu Pacinos í Carlito´s Way að minni. Don't wanna go far Rough night Tired baby... Tired...


Eníveis. Valur fékk Reiða blaðamanninn (svaka reiður á myndinni) til að tilnefna Topp 8 íslensku bíómyndirnar í Grapevine. Það var erfitt að finna 8 góðar íslenskar myndir en hafðist fyrir rest. Held auðvitað áfram að safna punktum hjá Hrafni Gunnlaugssyni. Það útilokar ekki að hann sé snillingur en ég skil hann bara ekki.

Átti víst 14 mánaða afmæli í gær en gleymdi því. Hættur að telja þannig að fallið langþráða hlýtur að vera skammt undan. Tók viðtal við dávaldinn Sailesh um daginn. Ferlega hress gaur og það varð úr að hann ætlar að hitta mig baksviðs á Broadway og taka úr mér alkóhólismann. Sagði að það væri ekkert sem hann gæti ekki lagað með dáleiðslu; offituvandamál, reykinar og ekki síst alkóhólisma. Ætli maður megi þá drekka þegar búið er að dáleiða alkann úr manni eða fer kannski bara löngunin?


| 23:35 |
komment

Er það ekki bara eitthvað sem verður að láta reyna á?

Nr. 1 | Ingólfur | 7.09.2004 | 15:02:10 | [+] |

"I had to go see about a girl"???

Nr. 2 | thors | 7.09.2004 | 21:37:58 | [+] |

Reyndar held ég að Robin W. hafi klykkt út með "Son of a bitch. He stole my line. "

Nr. 3 | Bezzervisser.biz | 7.09.2004 | 23:52:47 | [+] |

já, held líka að þú verðir bara að láta reina á það, Einusinni sem oftar hefur Ingó rétt firir sér

Nr. 4 | billjón | 8.09.2004 | 9:18:43 | [+] |

Ekki láta þér detta þetta í hug Tóts.......

Nr. 5 | sils | 13.09.2004 | 20:12:32 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff