»  off record  »  Nóna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Nóna
Þriðjudagur, 21. september 2004

Litla stelpan mín varð 12 ára í gær.

Það var föstudaginn 17. einhvers mánaðar 1992 sem Anna fór með prufu í Nesapótek á Eiðistorgi og fékk bleikan miða með tölunni 000637. Þessi miði var fyrsta heimildin sem við fengum um Jóhönnu en þennan dag skrifaði Anna þetta í dagbókina sína:

Í dag fengum við grun okkar staðfestan. Ég er ófrísk. Við sögðum pabba frá því og báðum mömmunum. Við sögðum pabba hans ekkert.

Það skemmtilegasta við þessa færslu er að með hverjum degi í dagbókinni fylgdi einhver speki og orð þessa dags voru:

Smart er smokkavalið. Landlæknisembættið.

Við vorum ekki með neinar smokkapælingar enda ætluðum við að búa til barn þó við værum bara 21 þannig að Nóna mín er ekkert slys enda einstaklega vel samansettur einstaklingur en rétt eins og Tony Sopranobenti á í gær eru tvö heilbrigð börn það sem stendur upp úr eftir hjónabönd okkar félaganna.

Enyveis. Þann 20. september klukkan rétt rúmlega eitt eftir miðnætti kom Nóna í heiminn. Ég var auðvitað á taugum en stóðst eldraunina og klippti á strenginn.
Þegar búið var að berja barnið til að gráta og mæðgurnar farnar að sofa rauk ég út á BSÍ keypti sígó, reykti þrjár í einum rykk og brunaði svo upp í Kópavog til mömmu og fór að gráta. Fæðing Jóhönnu er enn það magnaðasta sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Missti töffið algerlega enda eignaðist ég lítinn akkilesarhæl þegar ég hitti fyrir þessa litlu manneskju sem ég elska meira en sjálfan mig. Allt í einu fóru alls konar hlutir að skipta máli og lífið varð aldrei samt.
Bubbi hitti beint í mark þegar hann sagði að hjartað í manni þyngdist við að eignast barn. Eitthvað sem ég ætlaði nú aldrei að gera.

Anna var sett á 17. september og þar sem afi átti afmæli 19. september töldu flestir sjálfsagt að hún gengi með strák og hann myndi bíða til 19. þannig að Þórarinn Þórarinsson I og IV ættu sama fæðingardag. Afi sjálfur efaðist þó aldrei um að barnið væri stelpa, enda djúpvitur. Hann gaf henni því vinnuheitið Þórey þar sem hún væri samansett úr Þórarni og (Önnu) Fanney. Nafnadíllinn sem við vorum búinn að gera hljóðaði upp á að ef þetta yrði strákur mæti ég ráða (Þórarinn) en ef það væri stelpa réði Anna (Jóhanna í höfuðið á ex-tengdó). Lokaniðurstaðan varð því Jóhanna Þórey sem fór sjálf snemma að kalla sig Nónu. My pride and joy.


| 19:29 |
komment

En hvar er Hrafn Jökulsson?

Nr. 1 | Bubbi | 21.09.2004 | 22:04:02 | [+] |

og þú sjálfur?

Nr. 2 | Ingólfur | 22.09.2004 | 0:18:28 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff