They drew first blood...
Þriðjudagur, 14. september 2004
Einhverjir gætu haldið að við fyrrverandi hjónin værum komin í blóðuga ritdeilu sem getur ekki endað með örðu en hörðu forræðisstríði eftir að Anna hjólaði í mig með látum í dag og ljóstraði upp nokkrum best varðveitti leyndarmálum sambúðar okkar.
Kveikjan er vitaskuld Ég, femínistinn í Fréttablaðinu í dag þar sem ég saka Önnu um að hafa misnotað sér það að mamma var búin að brjóta mig niður með femínískum vígtólum áður en við byrjuðum að búa saman.
Það liggur þó ekkert svona safaríkt að baki "ritdeilunni" sem við erum þó að spá í að halda lifandi eitthvað áfram á síðum dagblaðanna en við plottuðum hluta af mögnuðu svari Önnu með símatli áður en húnbirti það. Held við höfum ekki hlegið jafn mikið af sjálfum okkur í 5-10 ár. Djókið felst auðvitað í því að þó Anna skrifi í ýkjustíl er um hreinræktaða sagnfræði að ræða. Ég lýg hins vegar sem fyrr öllu.
| 20:57 |