»  off record  »  800 snúningar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
800 snúningar
Þriðjudagur, 19. október 2004

Það er skarplega athugað að ég sleppti því úr frásögninni af feita kettinum að ég reif utan af rúmfötunum um leið og ég hafði hrakið skepnuna úr rúminu mínu. Aldrei að vita hvaða viðbjóð þessi dýr bera með sér.

Viðskipti mín við gömlu þvottavélina sem litli bróðir minn gaf mér þegar ég flutti á Víðimelinn eru nefnilega sér kapítuli út af fyrir sig.
Þessi 800 snúninga ræfill hætti nefnilega að vinda fljótlega eftir að ég flutti þannig að ég er búinn að vera að handvinda upp úr vélinni ofan í niðurfallið í þvóttahúsinu. Frekar þreytandi iðja. Fór svo að gruna hana um að vera hætta að þvo þegar hvítar þvottaefnis skellur tóku að gera vart við sig á blautu tauinu.
Ég ákvað þó að lifa í blekkingunni og halda áfram að "þvo" svona en nú er sá draumur búinn vegna þess að vélin er hætt að dæla af sér vatni þannig að ég mátti draga sængurfötin gegnblaut upp úr polli í tromlunni og handvinda með látum.
Já, mig vantar sem sagt þvottavél. Tek við tilboðum í kommentunum.


| 17:18 |
komment

Ég á þvottavél sem ég mun ekki nota næsta árið. Veit reyndar ekki hvað forrráðamaður hennar vill láta hana á. Tékka á því.

Nr. 1 | Doktor K | 19.10.2004 | 18:55:56 | [+] |

Hefurðu prufað að hreinsa síuna?

Nr. 2 | Óli Gneisti | 19.10.2004 | 19:18:28 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff