Fimmtudagur, 07. október 2004
Halldór lét þýða finnska e-mailið fyrir mig og þar er Pekka Manninen víst að lýsa eindregnum áhuga á því að eyða með mér nótt. Eins og Halldór bendir réttilega á borgar sig þó að fara varlega í að þekkjast boðið þar sem engar heimidlir liggja fyrir um kyn Pekka sem gæti allt eins verið hestur.
Talandi um hesta er ekki hægt að láta ónefndan hestanauðgarann í DV. Skil ekki þetta fjaðrafok. Vesalings maðurinn er bara alki sem gerir þetta bara fullur og er meðvitaður um að kannski sé bara málið að hætta að drekka. Sjálfur segist hann aldrei hafa orðið veikur af hestabröltinu en það er auðvitað alrangt. Hann er með gin- og klaufaveiki sem lýsir sér í því að þegar hann fær sér gin gerir hann sig sekan um svona klaufaskap.
Fréttin býður samt upp á endalausa möguleika og orðaleikirnir í gáfumannahorninu eru orðnir býsna súrir. "Maðurinn var klárlega á trippi", "Hestaskál í hryssingslegu veðri getur oft leitt til þess að maður skríður uppí hjá einhverri bykkju." Og svo framvegis.
Ég er í kunnuglegum sporum Anakins þessa dagana enda ekki tekið lyfin mín í rúman mánuð og drukkið mig í svefn í heila viku en mikið rosalega er gott að finna hatrið streyma um sig allan og mannfyrirlitninguna stigmagnast í jöfnu hlutfalli við fjölgun fíflanna í kringum mann. Húah! You don´t know the power of the dark side.
| 18:22 |