Þriðjudagur, 05. október 2004
Einhver Pekka Manninen var að senda mér póst sem ég botna ekkert í:
Terveisiä Suomesta!
Te olette selkeästi yhtä hulluja kuin mekin...
Tampereella 4.10.2004
Pekka Manninen
AC BadaBing
Póstinum fylgir slóð á þessa síðu sem bendir til þess að BadaBing! sé ekki jafn kúl í Finnlandi og í Reykjavík og New Jersey.
Janet Leigh er dáin. Það fylgdi ekki sögunni hvort hún hefði verið í sturtu en hún vissi það auðvitað kvenna best að sturtuklefinn er fordyri Helvítis.
Ég er hættur að skrifa fjölmiðlapistla í Fréttablaðið. Ótrúlegu fargi af mér létt og nú horfi ég bara á Sópranós. Næsta skref er svo auðvitað að hætta á alveg.
Eftir að hafa setið drykklanga stund á Vegamótum og horft á fallegt andlit sessunautar míns í kertaljósinu fékk ég það sem alcoholics refer to as a moment of clarity. Horfði á bjórglasið hennar og fattaði að mig langaði ekkert í bjór og myndi aldrei langa í bjór framar. Geggjað miðað við allt magnið sem ég hef drukkið um dagana en það er svo langt um liðið að ég get játað það hér og nú að mér fannst bjórinn alltaf vondur. Rauðvín og Bacardi gætu þó enn fellt mig á góðum degi.
Everybody be cool. YOU - be cool, sagði George Clooney í From Dusk til Dawn. Þetta hefur greinilega líka verið dagskipunin hjá Rodriguez við gerð Sin City en það sem sést hefur úr þeirri mynd er brjálæðislega töff. Velkist einhver í vafa um hvað film noir er þá er það nákvæmlega ÞETTA!
Castið í þessari mynd er geggjað og lúkkið sturlað enda eins gott þar sem myndin byggir á bestu myndasögum í heimi eftir meistara Miller. Ég hef verið að lesa þær eina feðrina enn undanfarið og það hefur ekkert breyst. Þær eru allar frábærar en That Yellow Bastard stendur enn upp úr. Það eina sem getur mögulega klikkað í myndinni er að Bruce Willis verði ekki látinn skjóta sig í hausinn en þar sem Miller vakir yfir verkefninu fer þetta örugglega allt eins og það á að gera.
Mickey Rourke gæti loksins verið að finna sig í hlutverki hálftröllsins Marv og þar sem ég fíla Jessicu Alba í tætlur get ég sætt mig við hana í hlutverki Nancyar, súlustelpunnar með gullhjartað. Alba er samt ekki natural blonde og er flottust með dökka hárið sitt.
Gat ekki gefið Næslandi betri dóm en þennan og það er ekki vegna þess að ég sé eins innrættur og forseti vor var sem þingmaður og megi ekki sjá neitt aumt án þess að sparka í það. Myndin er bara ekki betri en þetta. Tveir gagnrýnendur höfðu beðist undan því að skrifa um myndina áður en röðin kom að mér. Kannski vegna þess að handrukkaragengi gekk í skrokk á Friðrik Þór og þeir hafi ekki viljað höggva í sama knérunn. Held að ef þeir hefðu verið að fíla myndina hefðu þeir alveg verið til í tuskið. En ef einhver þarf að vera leiðinlegur þá er líklega lang best að ég taki það að mér. Practice makes perfect.
| 13:47 |