»  off record  »  Use Your Illusions
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Use Your Illusions
Mánudagur, 11. október 2004

Það er með miklum trega sem ég upplýsi það hér með að drykkjufærslurnar hér fyrir neðan eru upplognar. Ég hef svo sem ekki mikla samúð með því fólki sem er ekki sama um mig og fylltist skelfingu við að lesa það að ég væri fallinn.

Samúð mín er öll hjá hinum fjölmörgu gömlu drykkjufélögum mínum sem héldu að týndi sonurinn væri kominn aftur og hafa komið í röðum að heimili mínu undanfarna daga vel byrgir af áfengi. Það var leiðinlegt að senda allt þetta góða fólk á braut með brennivínið sitt og tár í augum en minn tími er ekki kominn. Samt gott að vita að drykkjuboltarnir mínir fylgist með mér og bíði upprisunnar.


| 17:28 |
komment

oooooh

Nr. 1 | bubbi | 12.10.2004 | 13:30:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff