»  off record  »  Edduspáin í DV
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Edduspáin í DV
Laugardagur, 13. nóvember 2004

Hinn margreyndi fjölmiðlamaður og stórvinur minn Jakob Bjarnar fer heldur illa með mig í DV í dag. Ég sé nú ekki ástæðu til að fara fram á leiðréttingu á síðu 2 í blaðinu á mánudaginn þar sem það heyrir til algerra undantekninga að blaðið fari rangt með staðreyndir.

Það leiðréttist samt sem áður hér með að ég skoraðist ekki undan í neinum flokki í Edduspánni sem birtist í blaðinu í dag. Og það er ég, en ekki Jón Atli, sem hafði þetta að segja um Sjónvarpsmann ársins:


Hér eru ansi margir tilkallaðir á misgóðum forsendum. Ræður ekki netkosning úrslitum í þessu? Það gerir alla spámennsku vonlausa og um leið er hættan mest á því að sá sem hreppi þessi verðlaun fái þau óverðskuldað. Gísli Marteinn er að mínu viti mjög vinsæll þó DV hafi leynt og ljóst reynt að grafa undan honum en prívat og persónulega finnst mér Sveppi, Auddi og Pétur eiga þetta. Sveppi vann þetta með svindli einu sinni en nú er öldin önnur og hann er án efa með skemmtilegri mönnum á skjánum.

Það kemur fram í DV að ég hafi ekki treyst mér til að svara þessu þar sem ég ætti á hættu að móðga væntanlega viðmælendur mína. Ég er nú svo dipló að ég hef enga áhyggjur af því að ég geti móðgað nokkurn mann. Sé það samt núna að ég gleymdi Agli Helgasyni. Hann er alltaf minn maður.

Annars er Eddan bara Eddan og mikið um hana að segja. Einu sinni skrifaði ég þetta um fyrirbærið.


Edduspáin fyrir hann Jakob:

Bíómynd ársins:

Kaldaljós

Kaldaljós er besta íslenska myndin sem sýnd var í bíó á þessu ári. Það er bara svo einfalt og ég held að það sé engin spurning að hún tekur þetta.

Besti leikari í aðalhlutverki:

Áslákur Ingvarsson

Ég held að það sé ekki á neinn hallað þó maður veðji á Áslák í þessari deild. Hann sýndi fantaleik í Kaldaljósi með glæsilegri frumraun í bíó.
Drengurinn er föðurbetrungur í myndinni og þá er mikið sagt. Svo er það líka svo ómótstæðilega krúttlegt þegar ungir talentar koma fram á sjónarsviðið þannig að Eddan hlýtur að vera hans.

Besti leikari í aukahlutverki:

Ilmur Kristjánsdóttir
Dís

Ilmur fer á kostum í Dís og massar þetta hlutverk sem var skrifað með hana í huga. Hún er ferlega fyndin og stelur hverri senunni á fætur annarri í myndinni og gerir um leið mikið fyrir heildarpakkann. Ætti eiginlega að vera að keppa í flokki aðalleikara.


Skemmtiþáttur ársins:

Svínasúpan er minn tebolli í þessum efnum en þó Idolið sé yfirmáta hallærislegt og í eðli sínu þrælbillegt sjónvarpsefni þrátt fyrir glæsilega umgjörð finnst mér eðlilegt að það hirði Edduna. Það er ekki hægt að líta fram hjá þeirri staðreynd að þessu ósköp eru megasökksess og gengur í fjöldann. Er það ekki það sem skemmtiþættir eiga að gera?


Sjónvarpsþáttur ársins:

Sjálfstætt fólk

Jón Ársæll á þetta og er alveg vel að því kominn þó þættirnir séu á köflum argasta sósíalpornó. Jón er auðvitað frábær sjónvarpsmaður, kann að taka skemmtileg viðtöl og hefur þægilega nærveru.


Vinsælasti sjónvarpsmaður ársins:

Hér eru ansi margir tilkallaðir á misgóðum forsendum. Ræður ekki netkosning úrslitum í þessu? Það gerir alla spámennsku vonlausa og um leið er hættan mest á því að sá sem hreppi þessi verðlaun fái þau óverðskuldað. Gísli Marteinn er að mínu viti mjög vinsæll þó DV hafi leynt og ljóst reynt að grafa undan honum en prívat og persónulega finnst mér Sveppi, Auddi og Pétur eiga þetta. Sveppi vann þetta með svindli einu sinni en nú er öldin önnur og hann er án efa með skemmtilegri mönnum á skjánum.


Heimildarmynd ársins:

Í þessu máli - Faux

Það er fínerísstöff að keppa hérna en ég held með vinkonu minni Sólveigu Anspach og finnst hún þar fyrir utan eiga inni fyrir Eddunni með bráðsmellinnni nálgun á hið óskiljanlega málverkafölsunarmál.


Hljóð og mynd:

Sigurður Sverrir Pálsson
Kaldaljós

Ég get nú varla mikið vit á þessum þáttum enda umhverfisblindur, vitasmekklaus og hálf heyrnarlaus. Mér fannst hins vegar allt ofboðslega flott og vel gert í Kaldaljósi. Þegar vitleysingur eins og ég áttar sig á að útlit myndar er flott þá er örugglega feykivel að verki staðið.


Útlit myndar:

Úlfur Karlsson
Anna afastelpa

Þetta er ekki heldur minn heimavöllur en Anna afastelpa er látlaus og falleg. Skjótum á hana.


Handrit ársins:

Jón Gnarr
Með mann á bakinu

Sumir rembast við að vera fyndnir en Jón Gnarr er náttúruafl í gríni. Hvaða vitleysa sem er verður eðlileg og sannfærandi í meðförum hans. Ég held með honum og finnst hann eiga að fá þetta.


Leikstjóri ársins:

Hilmar Oddsson
Kaldaljós

Ég held því fullum fetum fram að Kaldaljós sé besta íslenska mynd ársins og veðja á að hún fái verðlaun fyrir bestu mydnina og finnst sjálfgefið að Hilmar taki leikstjóraverðlaunin. Myndin er labor of love hjá honum. Það sést langar leiðir.

Stuttmynd ársins:

Síðasti bærinn

Ég er nú ekkert endilega á því að Síðasti bærinn sé besta myndin í þessum flokki en hún er vel gerð. Sagan hefur hins vegar oft verið sögð þannig að frumleikanum er ekki fyrir að fara. Hún er hins vegar á góðri siglingu. Tók Nordisk Panorama verðlaunin og er að gera það gott í útlöndum. Það setur á hana ákveðið seal of approval og það er í anda okkar að fylgja stefnu sem útlendingar hafa markað.


Leikið sjónvarpsefni ársins:

Njálssaga
Björn Br. Björnsson

Njála hefur slegið takktinn fyrir hjartslátt þjóðarinnar lengur en ég og mér eldri menn muna. Hugmyndin er góð og það eitt að ráðast í það að reyna að koma þessum kempum og kaldlyndum konum þeirra á filmu er í það minnsta einnar Eddu virði.


Tónlistarmyndband ársins:

Stop in the name of love
Bang Gang

Ég hef nú ekki horft á tónlistarmyndbönd svo heitið geti síðan Duran Duran féll af toppnum. Hef ekkert vit á þessu en Barði er skemmtilegur og klár og mér fróðara fólk fullyrðir að hann eigi þessa Eddu skilið.


| 18:05 |
komment

Jahh, hvur fjárinn. Þið eruð með svo líka rödd. Og svo voru svo miklir skruðningar þarna á borginni þar sem við hittumst þannig að ég hélt að þetta væri Jón en ekki sjálfur þú sem hafðir orðið -- þegar ég sem sagt var að hamra þetta niður af segulbandstækinu. Sorrý, Tóti minn!

Jakob

Nr. 1 | jakob | 15.11.2004 | 13:54:16 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff