»  off record  »  Málamyndadiss
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Málamyndadiss
Mánudagur, 29. nóvember 2004

punisher.gifÉg lifi svo geggjuðu og innihaldsríku lífi þessa dagana að blogg er mjög aftarlega á merinni. Er líka svo kátur að ég nenni varla að drulla yfir fólk lengur og þar með er í raun tilvistargrunnur Badabing! að engu orðinn.
Ég sé að það er liðin rúm vika síðan síðast og það sem var ferskt um daginn er dragúldið í dag but anyhu. Bágúst Orgþór var að stuða stórvin minn Þráinn Bertelsson á dögunum og komst sú rimma á síður DV.

Síðast þegar ég kíkti inn á blogg Ágústs Borgþórs var hann með böggum hildar vegna þess að hann átti von á vondum ritdómi í Fréttablaðinu (hafði lesið það á bloggi gagnrýnanda að hann hefði lesið smásagnasafn Orgþórs í flensu og það myndi bitna á bókinni). Það má vel skilja upphlaup Ágústs og ekki þarf að hafa mörg orð um dómgreindarbrest gagnrýnandans sem bloggar um andlegt ástand sitt við bóklestur og tísar umfjöllun sína þannig á mjög vafasömum forsendum.
Ágúst veit því vel hvursu leiðinlegir gagnrýnendur geta verið og ætti því ekki að vera hissa þó aðrir rithöfundar sendi honum tóninn þegar hann bregður sér í gervi gleðispillis. Mér fannst samt misráðið af mínum góða vini að svara Ágústi á bloggi hans. Það hefði verið flottara hjá Þráni að halda sig til hlés og siga valinkunnum orðhákum á borð við mig og Jakob Bjarnar á Ágúst. Það kann sjálfsagt enginn betur en Jakob að valda usla og sprengja sprengjur á netinu eins og sést best á press.is en þar liggur allt steindautt á milli þess sem Jakob ærir óstöðuga með innleggjum sínum.
Ég mæli samt með athugasemdum Þráins en það er alltaf gaman þegar hann tekur snúning. Uppgerðarhógværð Ágústs Borgþórs þegar hann svarar mínum manni er aftur á móti afar ósannfærandi ekki síst í ljósi þess að útblásið egó hans er stundum við það að sprengja ramma internetsins utan af sér á blogginu og gæti hæglega fyllt Vesturbæjarlaugina. En blogg er ekki smásaga og því ekkert að því að fléttan gangi ekki upp hjá skáldinu.

Uppgjörsgrein PÁÁ við skipbrot gamla DV í TMM er ekki síður áhugaverð lesning en kommentin á bloggi Ágústs Borgþórs. Hrun þessa risablunders Óla Björns var eðal drama og frásögn PÁÁ litast af því en samt þykist maður vita að PÁÁ dragi frekar úr og ef hann léti allt vaða gæti hann örugglega fyllt eitt hefti TMM af alls konar plottum og skít sem myndi láta JR líta út eins og Tom Hanks á góðum degi.
Fólk grét víst þegar blaðið dó enda aldrei gaman að missa vinnuna. Ég fann nú samt ekki til mikillar samkenndar þó texti PÁÁ væri tilfinningaríkur þar sem það hlakaði í DV liðinu þegar við á Fréttablaðinu vorum í sömu sporum nokkru áður. Þá sendi DV ljósmyndara á stakeout í Þverholtið til þess að ná myndum af okkur þegar við gæfumst endanlega upp og gengjum á dyr. Þetta myndamóment varð aldrei að veruleika og það felldi enginn tár þegar Eyjólfs Sveinssonar versjón Fréttablaðsins lognaðist út af. Gálgahúmorinn og töffið hélt okkur gangandi í gegnum þetta allt and the rest is history.
Ólafs þáttur Teits Guðnasonar er lang athyglisverðastur í þessari æsilegu yfirferð PÁÁ og þó Páll Ásgeir fari á kostum á Ólafur Teitur bestu línuna í greininni en hann hafði þetta að segja um meinlaust viðtal við Kristján Jóhannson sem PÁÁ hugðist birta í Helgarblaði DV:


Þetta er algerlega massívur áróður gegn Sjálfstæðisflokknum. Við verðum að laga þetta.

Úrvals blaðamennska og nú skil ég það betur hvers vegna ákveðnir Málverjar vildu á sínum tíma meina að Ólafur Teitur væri besti blaðamaður landsins. Málverjar hafa einstakt lag að snúa öllu á hvolf og einblína á brenglaða mynd af lífinu og tilverunni.

Nóg komið af dissi í bili. Þeir sem urðu útundan í þessari umferð eru beðnir velvirðingar.


| 17:16 |
komment

Ef menn eru ekki í vinaklíku þinni þá eru þeir uppnefndir.
Pistillinn er ekki slæmir en að virðist merkingarlaust uppnefnið er alveg lygilega barnalegt.

Nr. 1 | ÁBS | 1.12.2004 | 15:12:26 | [+] |

JAHÉRNA ÁBS

Uppnefndir? Barnalegt????

Sá engan uppnefndan í þessari ágæ.... uhm, í þessari færsu en það var eitthvað um vafastíxl/stafavíxl, það er ekkert barnalegt við vafastíxl, Spoonerisma eins og hann heitir á fræðimáli.

Ég var einhverntíma talinn til vina Þórarins og þá uppnefndi hann mig ótt og títt en ekki neitt eftir að ég lokaði á drundhjassann.

ÁBS (eða BÁS eins og mætti vafastíxla þér, hæfandi fyrir svona leiðindabeljur)
Haltu bara áfram að hringja í útvarpsþætti og röfla þar, með svona innantómum leiðindum er ég viss um að þú gætir fengið Ingva Hrafn, Sigurð G og Halla Thorst til að hætta í útvarpi.... hang on.... HEFURÐU VERIÐ AÐ HRINGJA Í SÖGU KANNSKI????

Og eitt í lokin, sérðu um textasmíð á Íslensku Auglýsingastofunni? "Pistillinn er ekki slæmir" ...ég verð nú bara að segja það, lygilga barnaleg villa.

Nr. 2 | Espir Sig | 1.12.2004 | 16:37:19 | [+] |

Jú, grunaði mig ekki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Prófarkalesari/textasmiður/smásagnahöfundur


sjá islenska.is

Eitthvað hefur Lófarkapresarinn verið æstur þegar hann skrifaði kommentið sitt.
Ert þú auglýsingagaurinn sem heldur að "ástríða" sé borið fram "ást-ríða" eins og oft er gert í auglýsingum þessa dagana

Ef það ert þú þá er það lygilega barnalegt.

Nr. 3 | Espir Sig | 1.12.2004 | 16:40:43 | [+] |

Þórarinn. Sumir vina þinna eru í það minnsta kunningjar þínir, ef ekki vinir. Ég þekki þá það vel að ég á erfitt með að ímynda mér annað en þeim þyki þetta líka barnalegt og þér til minnkunar. Þó að ég sé, rétt eins og þú og fjölmargir aðrir bloggarar, uppblásinn egóisti (já, stundum ertu nefnilega að lýsa sjálfum þér þegar þú lýsir mér) - þá játa ég mistök mín yfirleitt greiðlega og biðst afsökunar. Ég legg til að þú takir mig þér til fyrirmyndar í þeim efnum.

Nr. 4 | ábs | 1.12.2004 | 16:45:14 | [+] |

Meinleg villa hjá mér sem margur vitleysingurinn gæti velt sér upp úr: Ætlaði að segja "kunningjar mínir".

Nr. 5 | ábs | 1.12.2004 | 16:46:24 | [+] |

Húrra fyrir espi sig að finna prentvillu.

Bið að heilsa Kollu og öðru góðu fólki á Fréttablaðinu, Þórarinn.

Nr. 6 | ábs | 1.12.2004 | 16:48:32 | [+] |

ÁBS, smásagnahöfundur?

Samdir þú "Maðurinn er alltaf einir" eða jafnvel "Einum flaug yfir gaukshreiðrið"

Gott hjá þér Espir bróðir að láta fíflið heyra það, ef það er einhver sem mengar netið þá er það þessi dúfus með myndinni af sér á islenska.is

Snjáldrið á þessu greyji hentar hvergi nema kannski á plakat frá Regnbogabörnum um hörmulegar afleiðingar eineltis.

Nr. 7 | Ergir Sig | 1.12.2004 | 16:49:19 | [+] |

Tótillur Hólmsteinsskelfir að finna að bjánadissi?

....taktu frekar þátt maður

Nr. 8 | Espir Sig | 3.12.2004 | 3:07:13 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff