»  off record  »  Nixon gerði það
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Nixon gerði það
Laugardagur, 20. nóvember 2004

nixon.gifRichard Nixon og Sævar Ciesielski voru aðal skúrkarnir í æsku minni. Eldri frændsystkin mín gerðu töluvert af því að hóta mér með Sævari og að þau myndu láta hann koma og sækja mig ef ég yrði ekki til friðs. Það er óhætt að fullyrða að hann hafi virkað betur en Grýla.

Nixon var hins vegar minn maður en ég komst auðvitað ekki hjá því að fylgjast sæmilega vel með utanríkismálum þar sem ég elti afa á röndum. Ég komst því fljótt að því að Nixon þessi hefði ýmislegt misjafnt í pokahorninu og væri fínn blóraböggull. Þannig reyndi ég iðulega að freima Nixon þegar böndin tóku að berast að mér vegna ýmissa misgerða og þegar maður var gripinn glóðvolgur var svarið alltaf "Nixon gerði það". Þrátt fyrir að maðurinn væri úthrópaður skúrkur vildi samt aldrei neinn trúa mér.
Ég var búinn að gleyma þessu sambandi okkar Nixons en þar sem sonur minn er að kynnast kauða rifjaðist þetta upp. Doddi hefur þó aðeins fengið að sjá hausinn á Nixon í Futurama og er ekki par hrifinn af karlinum enda er hann hið mesta fól sem tekst að láta kjósa sig forseta Jarðarinnar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Doddi tilkynnti mér á dögunum að Nixon væri óþolandi. "Mister Nixon er hundleiðinlegur. Hann er alltaf að segja eitthvað leiðinlegt og gera eitthvað leiðinlegt. Hann er bara svooo leiðinlegur."
Mér þótti sonur minn dæma þennan gamla félaga minn heldur harkalega en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hef ég ekki náð að sannfæra drenginn um að Nixon sé ekki crook. Þetta er þó ef til vill ekki alslæmt.


| 22:13 |
komment

Haha þetta var fyndið!

Nr. 1 | Ingó | 21.11.2004 | 17:08:03 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff