Þriðjudagur, 09. nóvember 2004
Þóra, Kristján sonur Framsóknarflokksins og fleira gott fólk hefur verið að hnýta í mig ónotum vegna meintrar bloggleti. Stjáni hefur skorað á mig að taka BadaBing! niður og Þóra hefur sagt mér að gleyma þessu - það séu allir búinir að gefast upp á þessari "stone dead" síðu.
Mér finnst það nú full langt gengið að leggja síðuna niður enda stendur hún undir sér sem fínn gagnagrunnur fyrir mig þó hún sé í frosti. Við Laugurinn sjálfur vorum einmitt að ræða þetta helvítis blogg um daginn og komumst að þeirri niðurstöðu að við hefðum báðir byrjað á þessu til að halda utan um pælingar okkar. Við urðum líka sammála um það að fánýtari iðju en blogg sé vart hægt að hugsa sér enda hef ég svosem enga aðra afsökun fyrir æpandi þögninni hér aðra en þá að ég hef eignast líf aftur.
Ég er nú samt þannig saman settur, svolítið eins og Marty McFly í Back to the Future, að það er auðvelt að mana mig til illra verka það var nóg að kalla McFly "chicken" til að fá hann til að rísa úr öskustónni og þó ég sé orðinn coward eins og allir recovering alcoholics þá byrja ég að sjálfsögðu að blogga þegar mér er sagt að hætta.
Það er ekki spennandi að vera svona fyrirsjánlegur enda verður tilveran fábreytileg hjá fólki eins og mér. Allir dagar síðustu 10 árin hafa byrjað á morgunmat hermannsins - kóki og sígó - og svo hef ég verið með tvö Prins Póló og meira Kók í hádegismat frá því ég man eftir mér. Þetta stendur þó til bóta en ég kom til dæmis með ótrúlegan viðsnúning í Stuði milli stríða í dag.
EIR er heimspekingurinn sem triggeraði þennan pistil en mamma var líka búinn að skamma mig fyrir að vera alltaf svona þungur í þessum pistlum. Hún hefur víst ekki undan að leiðrétta þetta og reyna að telja fólki trú um að ég eigi ekki svona rosalega bágt.
Stjáni heldur því fram að það sjáist utan á mér að ég sé ástfanginn og Jakob tekur undir það og sagði mér um daginn að "droppa þessu uppgerðarþunglyndi sem enginn kaupir hvort eð er."
Fokk it.
| 12:25 |