»  off record  »  Svona eru jólin...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Svona eru jólin...
Þriðjudagur, 30. nóvember 2004

Fyrirsögnin er fengin að láni úr viðbjóðslegasta jólalagi allra tíma sem er svo vont að það getur gert Ingvar vin minn, sem er mesti geðprýðismaður sem ég þekki, hamstola af bræði.
Hvað um það, ég misnotaði aðstöðu mína í Fréttablaðinu í dag og tilkynnti það í 100.000 eintökum að ég muni ekki senda út jólakort í ár. Finnst ég vera ferlega frjáls fyrir vikið. Annars eru aðdáendur mínir farnir að kvarta yfir of mikilli jákvæðni í pistlunum. Krafan er meira þunglyndi. Ég hélt ég væri að gera fóli greiða með uppgerðarjákvæðni en mun nú aftur venda kvæði mínu í kross.

Kolla Bergþórs segir mér að það sé að koma heimsendir og því sé best fyrir mig að byrja að drekka aftur. Það er víst svo stutt í þetta að það tekur því ekki að vera edrú. Merkileg ábending og góðra gjalda verð.
Kolla hefur gaman af því að skreyta fyrir jólin, eins og kom fram í Silfri Egils á sunnudaginn. Þetta þykir mér merkilegt stílbrot í persónusköpun Kolbrúnar en samt sætt. Hún tekur þó undir það með mér að það sé af og frá að ég fái mér jólatré. Henni finnst það eitthvað voðalega "hommalegt" þegar menn sem búa einir skreyta jólatré.

Jólin eru tími sjálfsmorða og einsemdar og því gaman að staldra við og skoða hvað maður hefur sagt við drauga liðinna jóla.


| 17:18 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff