»  off record  »  Well Sue Ellen
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Well Sue Ellen
Sunnudagur, 21. nóvember 2004

JR.gifÉg keypti fyrstu tvö Dallas sísonin á DVD í nördamekkunni Nexus um daginn. Án efa ein besta fjárfestingin á ferlinum. Fimm tvöfaldir diskar og haugur af klukktímum sem eru kraumandi í svikum, prettum og hallærislegheitum.
Þessir þættir eru auðvitað sérstakt menningarfyrirbæri og þannig man ég að miðvikudagskvöld voru lömuð á meðan RÚV sýndi þetta í den.

Sjálfur lagði ég enn meira upp úr því að vera rebel og and-meinstrím þegar ég var krakki en nú og horfði því ekki á þetta. Komst samt ekki hjá því að frétta af þessum JR sem allir elskuðu að hata. Þegar ég byrjaði loksins að fylgjast með Dallas var ég búinn að ná þeim félagslega vanþroska að halda með JR.
En þar sem ég byrjaði að horfa svona seint vissi ég ekki, fyrr en nú, að Ray Krebbs og Pamela voru ætem áður en hún byrjaði með Bobby. Vissi heldur ekki að JR og Ray hefðu stundað það að fara saman að gylja tjéllingar og að þeir hefðu lagst á eitt um að stía Bobby og Pam í sundur. Þegar ég byrjaði að fylgjast með þessu var Ray orðinn einn aðal góði gæinn. Lucy var greinilega spillt, vergjörn tík frá upphafi og Sue Ellen hefur alltaf átt bágt. Pamela var sætust í den og er það enn.
Mig rámar í að Dallas hafi verið halló í gamla daga fyrir utan titillagið sem er gargandi snilld, Pamelu og JR og ekki eldist þetta vel og aumingjahrollurinn hríslaðist um mig í gegnum allan fyrsta þáttinn. Samt gaman að þessu; allir úti að reykja í kuldanum og auðvitað alltaf allir með í glasi. Helsti fórnarkostnaður Larry Hagman (JR) var að hann eyðilagði í sér lifirna á meðan hann lék í þáttunum enda alltaf að lepja on camera. Eftir fyrsta þáttinn hefur þetta vanist hratt og ég er kominn í gegnum fimm þætti og get ekki beðið eftir að halda áfram.
Á þessum stutta tíma er Bobby búinn að berja JR einu sinni, Sue Ellen búin að gera drykkjubömmer, JR búinn að ríða af sér einkaritarann og láta Pam missa eitt stykki fóstur. JR hlýtur að fara að detta í sundlaugina bráðum en ég held að orðaskiptum þeirra bræðra hafi yfirleitt lokið með því að sá eldri endaði í lauginni.
Fjórði þátturinn er eftirminnilegur fyrir þær sakir að þar mætir Brian Denehy til leiks í gestahlutverki manns sem JR hefur kokkálað. Denehy er ekki að fíla þetta og ryðst við annan mann inn á Southfork til að nauðga amk tveimur Ewing skutlum. Sue Ellen og Lucy liggja því illa í því þar til Jock og Bobby koma og skakka leikinn. Það var eitthvað töff við Jock en samt var hann svalari í minningunni og Jim Davis virðist vera alveg á síðustu metrunum strax í upphafi. Bobby þoldi ég alltaf illa. Óþolandi gúddí gæi. Það hefur ekki breyst. Þessir þættir væru ekki neitt neitt ef ekki væri fyrir JR, Pam og helvítið hann Cliff Barnes. Þættirnir eru vitaskuld alveg bullandi alkóhólískir og Ken Kercival (Cliff) heiðraði meira að segja Ísland með nærveru sinni þegar SÁÁ var stofnað eða eitthvað álíka. Sagði drykkjusögu sína í Sjónvarpinu.
Jamm, íslenska þjóðarsálin og Dallas áttu samleið sem sást best á því að þegar RÚV hætti að sýna þættina fór Olís að leigja þá á bensínstöðvum án samráðs við hin félögin sem fóru á límingunum.
Ætli maður endi ekki með að kaupa þetta allt saman og eyði því sem eftir lifir ævinnar við fótskör meistara JR. Verð að minnsta kosti að eignast þætti með upphafskynningunni sem er greipt í minni mitt. Lucy á bíkíni og Pamela að ganga í grasi í köflóttri skyrtu að því er virðist í engum (boing, boing) brjóstahaldara.

Well Sue Ellen... smá gáta í lokin. What to you get when you cross a Barnes and a Ewing?


| 21:22 |
komment

Barning

Nr. 1 | snorri | 22.11.2004 | 1:45:19 | [+] |

Duu du duu duduu duddududdu du du du dudduduuuu!

Svona gersemum deilir fólk með fjölskyldum sínum Tóti minn...

Nr. 2 | solla máfkona | 22.11.2004 | 15:41:32 | [+] |

Var titillagið ekki flutt af Árna Egilssyni, bassaleikara (ásamt fleirum auðvitað:)). Eða hann samdi það eða eitthvað. Man bara eftir viðtali við hann í sjónvarpinu á þessum tíma þar sem var voða mikið spurt út í Dallas en hann vildi bara tala um jass.

Nr. 3 | Gummi | 24.11.2004 | 10:17:24 | [+] |

Gleymdir einu Du-i, það er sko Du Duu Du Duu Duduu dududu!

Nr. 4 | thors | 25.11.2004 | 21:37:50 | [+] |

Gummi ég elska þig...

Nr. 5 | grrrr... | 26.11.2004 | 16:42:18 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff