»  off record  »  Adriana
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Adriana
Þriðjudagur, 07. desember 2004

Hún Adriana mín er búin að vera feig ansi lengi en þar sem hennar málum hefur lítið verið fylgt eftir í Sópranós síðustu vikur var ég að gera mér vonir um að hún myndi lifa þessa seríu af.

Þær vonir urðu að engu þegar Silvio skaut hana í gær. Hinsta bílferðin var mjög flott atriði og ég er þakklátur fyrir að hún var drepin off screen. Annars var þetta thunder þáttur og gaman að sjá Christopher halla sér aftur að flöskunni. Þetta eru auðvitað dramatísk móment í lífi hvers alka en samt var ekkert verið að magna það sérstaklega. Þetta var bara sett fram eins og það gerist í alvörunni; fólk fær sér bara einn bjór eða eitt glas og verður síðan að vælandi aumingjum í gremjukasti áður en það veit af.
Christopher átti samt vel inni fyrir því að fá sér í nös enda ekki á hverjum degi sem maður tekur þátt í að kála ástinni sinni. But what are you gonna do? Mómentið þegar hann sá að sér þegar hann horfði á sorglegt fjölskyldupakkið raða börnum og matvöru í bílinn var geggjað turning point og Chris er hvorki fyrsti né síðasti maðurinn sem fórnar konu til þess að verða ekki ömurlegur smáborgari.


| 9:39 |
komment

And more to the point: ef hann hann lét kála henni til að koma í veg fyrir að verða smáborgari, af hverju fékk hann þá samviskubit þegar hann sá smáborgarana?

Nr. 1 | Organistinn | 7.12.2004 | 23:11:26 | [+] |

Þessi þáttur var frábær, ég átti í svolitlum erfiðleikum með að negla bensínstöðvaratriðið niður og eftir á að hyggja held ég að það sé meiningin, hvað sá hann, hvað sér hver og einn. Svona setja aðeins snillingar á skjáinn. Þetta með samviskubitið fatta ég ekki...

Nr. 2 | thors | 8.12.2004 | 17:18:36 | [+] |

...oh, sorry, misskilningur, hélt að hann hefði "séð að sér" eftir að henni var kálað en ekki áður. Þessir þættir eru ekki væntanlegir hér í Færeyjum fyrr en í sumar.

Nr. 3 | Organistinn | 9.12.2004 | 9:29:25 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff