Föstudagur, 17. desember 2004
Svo hrein hann upp af vonsku,
því hann var nú hálfgert fól:
"Ég verð að sjá til þess,
að það komi engin jól!"
Djöfull er þetta ótrúlega súrt lið sem ég vinn með. Nú eru deildirnar að keppa í jólaskreytingum og flestir fara hamförum í barnaskapnum. Við Kolla Bergþórs tökum að sjálfsögðu ekki þátt í þessum "leikskólaleik" eins og prímadonnan orðar það en hún er orðin hundleið á að vinna með "svona Dale Carnegie pakki."
Ég er auðvitað mjög stoltur af minni deild sem tekur ekki þátt fyrir utan það að ég er með Kókflösku á borðinu mínu (sem er mjög jólalegt) og Punisher hauskúpuderhúfu á hausnum (sem er lýsandi fyrir jólaskapið mitt). Mitt fólk hefur meiri áhuga á að koma út blöðum en að mjúkmannast upp um hólf og gólf með greni, músastiga og piparkökur.
Þessi jól geta étið skít mín vegna.
| 14:17 |