Miðvikudagur, 01. desember 2004
Einn skemmtilegasti reykfélagi minn í Skaftahlíðinni, Reynir Traustason, tók hatt sinn og gekk í gær. Hann þakkaði við þetta tækifæri fyrir "fyrir frábært og gefandi samstarf á einhverjum mestu umbrotatímum í íslenskri fjölmiðlasögu." Það eru engar ýkjur hjá kallinum að það hefur mikið gengið á síðan hann yfirgaf gamla DV og kom yfir á Fréttablaðið og endaði svo á endurreistu DV.
Reynir settist víst árla morguns í ritstjórastól Mannlífs og ef ég hefði skrifað fréttina um vistaskiptin hefði ég freistast til að hafa fyrirsögnina:
Vestfirskur togarajaxl tekur við glanstímariti
Reynir hefur tjáð mér að hann ætli ekkert að gefa eftir í umfjöllunum um meik, maskara og tískustrauma þannig að ég spái því að barðamiklir hattar og ísbjarnaklær verði í tísku í byrjun árs.
Reynir er einn af örfáum sem hefur afleysingabloggað á BadaBing!
| 14:04 |