Þriðjudagur, 18. janúar 2005
Það kemur málinu svo sem ekkert við að ég er með tvö stór Tomb Raider plaggöt yfir rúminu mínu en ég fann mig knúinn til að verja heiður Angelinu í Fréttablaðinu.
EIR segir mér að þetta sé það skarpasta sem ég hef skrifað lengi og tekur undir að bömmerinn liggi hjá Brad. Fólk hefur mikið þurft að ræða þetta við mig í dag og ég hef ekki reynt að fara leynt með andúð mína á Brad Pitt sem mér finnst bæði ljótur og leiðinlegur. Ég hef því auðvitað verið vændur um afbrýðisemi í garð þessa hjartaknúsara en hafna því alfarið um leið og ég tel rétt að gera upp við Pitt í eitt skipti fyrir öll:
Það hefur aldrei staðið á mér að gangast við og viðurkenna fegurð karlmanna. Johnny Deep er til að mynda fallegasti karlmaður í heimi, nánast guðdómlegur. Þá er Jude Law einnig mikið augnayndi (karlmen eru það sjaldnast) en kannski full nettur og feminin.
Brad Pitt er hins vegar ekkert annað en ljótur með líflaus augun og gapandi aulasvipinn. Þar fyrir utan er maðurinn afspyrnu lélegur og stórkostlega ofmetinn leikari. Hann var í lagi í Se7en, Snatch, Twelve Monkeys og smáhlutverki í Thelma&Louise en annars sökkar hann sérstaklega í Troy, Spy Game, The Mexican, Meet Joe Black, Seven Years in Tibet, The Devil's Own, Sleepers, Legends of the Fall, Kalifornia, Cool World og er algjörlega hörmulegur sem blóðsugan grenjandi í Interview with the Vampire.
Pitt hefur sem sagt staðið sig vel í fjórum myndum og nýtur þá í öllum tilfellum hæfileika leikstjóranna og mótleikara. Honum tekst hins vegar oftar að vera lélegur undir stjórn góðs fólks.
Ég byrjaði að hata Tom Cruise þegar hann skaust á toppinn á meðan Mickey Rourke komst ekki rassgat. Enn eitt dæmið um að hæfileikar hafa ekkert með velgengni í Hollywood að gera. Pitt böggaði mig ekkert framan af en þegar það kom á daginn fyrir all mörgum árum að hann fengi 7 milljónir dollara á mynd á meðan Johnny Deep tók 1 milljón var mælirinn fullur. Enn ein sönnun þess að ekkert samhengi er milli hæfileika og upphæðarinnar á launatékkanum í Hollywood.
Brad Pitt er leiðinlegur asni sem á allt annað skilið en að njóta vináttu og hlýju Angelinu. Annars viðurkenni ég fúslega að þetta er ekki málefnaleg gagnrýni enda er þetta persónulegt þar sem ég hatann.
| 17:25 |