»  off record  »  Guð gefur konur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Guð gefur konur
Miðvikudagur, 19. janúar 2005

xpunisher.gifÉg hef oft fengið að heyra það að mér sé ekkert heilagt, að ég sé ófyrirleitinn, ómerkilegur og ósanngjarn. Samt brá mér í brún þegar ég rak augun í þennan málshátt fyrir 20. janúar í nýju 2005 Dagbókinni minni:

Þeim sem Guð elskar gefur hann góða konu.

Þeir sem sjá ekki kvenfyrilitninguna í þessu eru bjánar. Að maður tali ekki um hrokann sem felst í því að gera konur að einhverjum andskotans fálkaorðum sem guð útdeilir til góðra manna. (Hvað segir þú um það Gneisti góður?)

Það gladdi mig því mjög þegar ég frétti að Oddi hefði innkallað rembudagbækur 2005 eftir kvörtun frá Femínistafélaginu. Var mjög ánægður með félagskapinn og finnst þetta gott dæmi um mikilvægi þess að gott fólk standi vaktina í jafnréttismálunum en þegar svona gamaldags, lúmskur óþverra áróður fær að birtast alls staðar átölulaust er verið að viðhalda brengluðu ástandi.

Ég taldi mig því heldur betur hafa komist í feitt og að Dagbókin mín sem Fréttablaðið lagði mér til yrði í framtíðinni verðmætur minjargripur um blinda karlrembu sem ég gæti selt á e-Bay. Skoðaði hana betur og viti menn. Fann líka:

Fötin sem skapa konuna eru hin sömu og gera manninn að öreiga.

Húsráð: Gerðu hreint þegar þú ert reið, kauptu inn þegar þú ert södd, eldaðu mat þegar þú ert svöng. (Þessi boðháttur á að sjálfsögðu einungis við konur).

Gifting er happdrætti þar sem maðurinn hættir frelsi sínu en konan hamingju sinni. (Konurnar í Kvennaathvarfinu geta örugglega staðfest að þær glötuðu einungis hamingjunni. Þær höfðu fullkomið frelsi þegar þær gengu á hurðirnar).

Giftingarvottorð: Skjal, sem gefur konu rétt til þess að aka manni áfram.

Daðrið er hjá mörgum stúlkum sjötta skilningarvitið, sem verkar oft betur en öll hin til samans.

Hvað er í gangi?

Sagan er samt ekki öll sögð þar sem ég var að komast að því að Dagbókin mín er frá Bókaútgáfunni Varmá og gengur því enn laus og að Odda bækurnar sem hafa verið innkallaðar voru enn verri.

Þetta mál hefur vitaskuld dúkkað upp í fávitarotþrónni Málefnin.com en þar ryðst hvert helvítis fíflið á fætur öðru fram og fordæmir Femínistafélagið að því er virðist fyrir rasisma, nasisma, bókabrennutilburði og heimskulegar tilhneigingar til að vilja breyta sögunni með því að þagga niður gamlan og góðan þjóðlegan fróðleik.
Það á sem sagt að gera úreltum rembuviðhorfum hátt undir höfði í nafni þjóðmenningar. Vafasamt í meira lagi og sjálfsagt eru þessir málshættir ekki allir sprottnir upp í grárri forneskju. Þessir Málverjar hljóta þá að hafa Biblíutúlkun Gunnars í Krossinum til hliðsjónar þegar þeir ræða málefni samkynhneigðra. Ég meina ekki förum við að draga 4000 ára gamla visku í efa. Jörðin er þá einnig miðja alheimsins og Sólin snýst kringum hana.

Sjálfur hef ég þurft að standa í þrasi á göngunum út af þessu í dag þar sem reynt hefur verið að krossfesta mig fyrir að vera "illa smitaður af femínisma" þegar ég geri mig sekan um heilbrigða skynsemi. Ég sé engar tengingar á milli bókabrenna og femínisma og myndi aldrei styðja slíkt enda er ljótt að brenna bækur. Málverjabrennur eru hins vegar fyrirbæri sem ætti að skoða nánar enda finnst varla betri eldsmatur en uppþornaðir eintrjáningar.


| 15:22 |
komment

Það er kunn staðreynd að innan Fréttablaðsins og DV er harðbannað að sýna nokkra tilburði í átt að jafnrétti og/eða femínisma. Þetta eru bannorð og bannviðhorf. Almennt séð, sýnist mér, virðist fólki finnast femínismi óþarfur og hrein og klár vitleysa. Gakktu meðfram veggjunum í nokkra daga í viðbót Tóti og þegiðu. Annars gætu Diesel-gallabuxnaklæddu og síreykjandi töffararnir inni á DV kastað í þig grjóti.
Að þú skulir hafa látið út úr þér svona bull...

Nr. 1 | Femínistinn | 19.01.2005 | 18:26:42 | [+] |

Tóti mig langar að lemja þig núna; ég trúi ekki mínum eigin augum; ertu orðin vitlaus elsku kallinn minn og seint hefði ég búist við því af þér að rakka niður félaga þina þó þeir hafi aðrar skoðanir en þú!! Nei þetta er ekki sá Tóti sem mér þykir vænt um og hef þekkt hvað lengst? Hvert fór hann eiginlega og hvar heldur hann sig?
Begga mannréttindasinni

Nr. 2 | Begga | 20.01.2005 | 17:26:26 | [+] |

Elsku kallinn; játa að ég hafði þig fyrir rangri sök. Taldi þig hafa skrifað það sem tómatsósa hafði að segja og fannst þá fokið í flest skjól og trúði ekki mínum eigin augum. Auðvitað varst það ekki þú enda hefði það þýtt að orðið hafi í þér stökkbreyting á gamalsaldri. Nei, það gat ekki verið, þó að skoðanirnar hafi breyst en það er ekki við þig að sakast. Þannig fer ástin með manninn. Það lævísa hugarástand sem jafnvel lætur menn drepa ef því er að skipta...Láttu mig þekkja það.
Mamms

Nr. 3 | Begga | 20.01.2005 | 19:37:28 | [+] |

Í dag syrgi ég gagnkvæma virðingu og málefnalegar umræður og tek ofan fyrir Tóta.

Nr. 4 | Ásta | 21.01.2005 | 13:13:58 | [+] |

Sjálfstæðar skoðanir!"#$%&/

-Ertu alveg búin að gefa prinsippin upp á bátinn systir góð?

Nr. 5 | rjómabollan | 25.01.2005 | 15:13:50 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff