»  off record  »  Liðið mitt
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Liðið mitt
Þriðjudagur, 25. janúar 2005

crystal.gifÓskarsverðlaunatilnefningarnar virðast svona í fljótu bragði að minnsta kosti vera í lagi. Ég er alltaf á persónulegu leveli þegar ég pæli í þessu og er sama um allt svo lengi sem mitt fólk er með og vinnur.

Ágætislið í pottinum í ár en ég held auðvitað með Johny Deep í aðalkarlhlutverkinu, Clive Owen í aukahlutverki, Kate Winslet í aðalkvenhlutverki fyrir Eternal Sunshine og tryllist ef Virgina Madsen vinnur ekki fyrir Sideways. Hef ekki séð neina af hinum leikkonunum í sínum myndum en Madsen er að gera svo drullugott comeback í Sideways en hún var á sínum tíma í Electric Dreams, Candyman og fleiri hrollum. Flott stelpa og systir Michaels Madsen reservoir dogs en sagan segir að hann hafi þolað það illa að hún skyldi koma nakin fram í bíómyndum.
Treysti mér ekki til að velja tilnefnda bestu mynd í mitt lið strax. Hef bara séð Sideways sem er frábær mynd en samt ekkert Óskarsmateríal. Hef trú á að Scorsese sé málið.

Það er löngu frægt að BadaBing! er eini íslenski vefmiðillinn sem lýsir beint frá Óskarnum og ef ég ætla að halda þeim góða sið til streitu verð ég að fara að koma sjónvarpinu í viðgerð og plögga Digital Island afruglaranum í samband en hann hefur legið á stofugólfinu í kassanum síðan í desember.

Úrdráttur úr beinu lýsingunni árið 2001

2002 finnst ekki í gagnabönkum BadaBing!

Bein lýsing árið 2003

Bein lýsing 2004


| 14:19 |
komment

Ósýnileg klipping er alltaf besta klippingin skv. Hollywoodstaðlinum. Verð illa svikinn ef Thelma Schoonmaker nappar ekki Óskarinn.

Nr. 1 | Refurinn Loki | 25.01.2005 | 19:38:30 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff