»  off record  »  Lögskilinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Lögskilinn
Laugardagur, 08. janúar 2005

Eftir að hafa verið misskilinn nær allt mitt líf er ég nú loksins lögskilinn. Það er bara helvíti góð tilfinning en nú er formlega búið að slíta, með stimplum og undirritun beggja aðila í sátt, sambandi sem Jim Morrison, Díógenes og Nietzche ráku fyrstu fleygana í. Átti auðvitað að sjá það strax að með þessa andmælendur væri þetta sjálfdautt.

Skellti næstum upp úr þegar kerlingin hjá Sýslumanni sagði að ég mætti ekki gifta mig á næstu tveimur mánuðum eftir að skilnaðarleyfið tekur gildi. Liggur fólki virkilega svona á að endurtaka sömu mistökin að það þarf að hafa svona klásúlu?
Það er heilmikið maus að skilja. Skriffinska og þvælingur á milli herbergja mis hressra embættismanna og þetta kostar 3100 krónur. Það getur líka verið heilmikið bögg að gifta sig en þegar þessi reynsla er tekin saman í eitt fullyrði ég að það að hitta prest fyrir og eftir hjónaband er leiðinlegast. Og eftir að hafa smakkað á þessu ræð ég vitaskuld öllu hugsandi fólki frá því að leggja formlegt hjónaband á sig. Ástin hefur líka ekkert með eyðublöð, stimpla og samþykki guðs að gera.

Ég á hafði þó sérsaumuð kjólföt sem passa enn á mig upp úr krafsinu so je ne regrette rien.


| 20:10 |
komment

Ég sé hvað þú ert að reyna að koma í veg fyrir og ég skil það vel.

Nr. 1 | Hryssan | 10.01.2005 | 23:44:08 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff