»  off record  »  Look back in anger
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Look back in anger
Mánudagur, 10. janúar 2005

punisher.gifViðhaldið á þessari síðu er fyrst og fremst farið að felast í því að eyða spammi úr kommentunum. Þetta er töluverð vinna í Movable Type og lítið púður eftir í manni að daglegum hreingerningum loknum.

Ég hef þó eitthvað verið að myndast við að skjóta inn nýjum færslum. Aðallega til að fá frið fyrir Syni Framsóknarflokksins sem kvartar reglulega yfir bloggleti. For the record þá er Gummi Steingríms ekki þessi Sonur Framsóknarflokksins eins og margir virðast halda. Anyhu. Þetta eru bara dauðakippir og það styttist í að ég taki undir með Lauginum vini mínum sem segir þetta á síðunni sinni:

Blogg er ekki hresst nema maður hafi eitthvað að segja.

Ég hætti að nenna þessu fyrir löngu og því tek ég þessa síðu niður.

Gulli bendir svo í framhaldinu á að gamla bloggið hans hafi heilmikið heimildagildi um það sem hann var að "spá eða steikja hverju sinni". Ég get svo sem sagt það sama og þessi flashback færsla er einmitt svona upprifjunar búllsjitt í áramótafílíng. Hellingur af tenglum á gamla snilld sem sýna svo ekki verður um villst að mér fer aftur með hverju árinu sem ég eyði á Fréttablaðinu.

Ég taldi mig vera hættan að skrifa Við tækið en nú hef ég mátt fylla það gat tvisvar með skömmu millibili. Fyrri pistilinn er um íslenskar myndir í sjónvarpi. Þar koma við sögu Kaldaljós og heimildarmyndin Íslenska sveitin sem ég hef áður skrifað um hér og hér.
Seinni pistilinn er hefðbundið fótboltadiss og ekkert um hann að segja annað en að það er fátt leiðinlegra en að skrifa um sjónvarp.

Hafið var einnig í Sjónvarpinu yfir hátíðarnar og því ekki úr vegi að dusta rykið af færslunni um Kristinn Snæland leigubílstjóra sem fann Hafinu, á sínum tíma, allt til foráttu en það sem fór mest í taugarnar á honum var að það er ekki hægt að ríða í Land Rover eins og það var gert í myndinni. Hafði aldrei séð Hafið áður og sat því límdur við sjónvarpið og beið eftir rassaköstunum í sóllúgunni.

Maður verður svo fastur við kassann næstu sunnudagskvöld þar sem RÚV tekur menningarhlutverk sitt óvenjuhátíðlega um þessar mundir og er byrjað að sýna Myrkrahöfðingja Hrafns Gunnlaugssonar í fjórum hlutum. Fallega gert að kútta þetta svona niður til að stytta vikulegar píslir þeirra sem slysast til að horfa á bullið.
Hrafn Jökulsson bað mig um að skrifa um Myrkrahöfðingjan á Pressan.is þegar Sjónvarpið sýndi hana í bíóútgáfunni einhver jólin. Sú grein er tímalaus snilld sem þolir endalausa endurskoðun. Ég skrifaði þetta auðvitað á netið í trausti þess að enginn læsi og fékk nettan hroll þegar ég frétti að greinin hefði verið lesið upp í Útvarpinu að mig minnir í kjölfar fréttar um að Sjónvarpið ætlaði að sýna þessa 4 þátta versjón af hörmungunum. Menningararmur Sjálfstæðisflokksins hefur svo gengið svo hressilega fram af manni síðan þá að ég óttast ekkert þegar það kemur að gagnrýni á þessa kóna, sbr. þessa færslu. Þá er gaman að upplýsa það hér að aðdáendur mínir á Málefnin.com nota brot úr Píslarsögu minni í umræðum um Myrkrahöfðingjan. Aldrei þessu vant virðast þeir skilja mig rétt blessaðir.

Nýja Stuðmannamyndin fékk ekki Myrkrahöfðingja trítment hjá mér og fyrir vikið hef ég verið vændur um það að vera gunga og á víst að vera hræddur við Jakob Frímann. Sá sem óttast ekki HHG og HG verður aldrei hræddur við Jack Magnet.Það er kjaftæði en ég er hins vegar fer og skver og Í takt við tímann er bara alls ekki alslæm þó ramgölluð sé.

Tók líka aðeins til í liðnum AÐRIR um áramótin. Þar ber hæst hótun Ástþórs um bankarán og fróðleik sem Haraldur heitinn Blöndal sendi mér um ófétið Paul Watson. Mátti líka til með að halda þarna til haga bút úr snilldar áramótagrein Hallgríms Helgasonar. Holl hugvekja þar á ferð.


| 17:23 |
komment

Ég er með eina: "Áfram Ísland".

Nr. 1 | Magnús | 13.01.2005 | 20:45:38 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff